Um KMÍ
Á döfinni

2.9.2024

Ljósbrot hlýtur aðalverðlaun Oslo Pix-kvikmyndahátíðarinnar

Kvikmyndin Ljósbrot, í leikstjórn Rúnars Rúnarssonar, hlaut aðalverðlaun kvikmyndahátíðarinnar Oslo Pix þar sem hún var valin besta norræna kvikmyndin.

„Ljósbrot fjallar um sorgina á fíngerðan og flókinn hátt,“ sagði Jorunn Myklebust, formaður dómnefndar þegar verðlaunin voru veitt á lokaathöfn hátíðarinnar um liðna helgi. „Á stuttum tíma fangar myndin fjölmargar tilfinningar eins og ást, umhyggju, reiði og afbrýðisemi. Í gegnum þetta litróf tilfinninga ná aðalkvenpersónurnar að tengjast. Með þeim færist áhorfandinn í áttina að von sem sigrar óttann. Ljósbrot er hrá, líkamleg og húmanísk saga sem getur skapað tilfinningalegan hljómgrunn hjá öllum.“

Þetta eru fimmtu alþjóðlegu kvikmyndaverðlaunin sem Ljósbrot hlýtur. Myndin hefur notið mikillar velgengni síðan hún var heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes við standandi lófaklapp. Hún er í forvali til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna og hefur verið valin á fjölda virtra kvikmyndahátíða. Þá hefur Ljósbrot einnig selst vel og mun fara í almennar sýningar um allan heim á næstunni.

„Þessi velgengni Ljósbrots er búin að vera lyginni líkust,“ segir Rúnar Rúnarsson leikstjóri. „En svona kraftaverk gerast ekki af sjálfu sér. Við erum svo heppin að hafa ótrúlega hæfileikaríkan hóp leikara, frábæra listamenn og fagfólk og jarðveg sem einkaaðilar og stjórnvöld hafa verið að rækta undanfarin ár. Við megum öll vera stolt.“