Ljósbrot og O eftir Rúnar Rúnarsson valdar á Toronto
Stuttmyndin O (Hringur) eftir Rúnar Rúnarsson, með Ingvari Sigurðssyni í aðalhlutverki, hefur verið valin til keppni á TIFF, Alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Toronto í Kanada . TIFF er ein stærsta og mikilvægasta kvikmyndahátíð í Norður-Ameríku og fer fram 5.-15. september.
Vinni O (Hringur) aðalverðlaun á hátíðinni verður myndin sjálkrafa hluti af forvali fyrir Óskarsverðlaunin 2025. Stuttmynd Rúnars, Síðasti bærinn, var tilnefnd til verðlaunanna árið 2006.
Nýjasta kvikmynd Rúnars, Ljósbrot, hefur einnig verið valin til sýningar á hátíðinni. Hún verður sýnd í flokknnum Centrepiece, þar sem helgaður er samtímamyndum eftir þekkta leikstjóra sem þykja skara fram úr á líðandi stundu.
https://www.youtube.com/watch?v=iTWqzppqh8Q&pp=ygUJbGrDs3Nicm90
„Að eiga tvær myndir á kvikmyndahátíð af þessari stærðargráðu er auðvitað einstakt afrek og er til marks um stöðu Rúnars í alþjóðlegri kvikmyndagerð,“ segir Heather Millard, framleiðandi. „Cannes og Feneyjar eru stóra sviðið í Evrópu. Ljósbrot var opnunarmynd á Cannes og O (Hringur) er í aðalkeppni í Feneyjum. Við erum auðvitað orðlaus yfir þessari velgengni og viðurkenningum beggja mynda og nú að vera komin til Toronto sem er stóra sviðið í Norður Ameríku. Sem er auðvitað mikill heiður”
Ljósbrot hefur átt mikilli velgengni að fagna síðan hún var heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes fyrr í vor og hlotið fern alþjóðleg verðlan. Rúnar hlakkar til að að frumsýna myndirnar á Íslandi. „Við byrjum á Ljósbroti 28. ágúst og svo mun O (Hringur) fara í sýningar 5. september. Við erum að gera myndir fyrir íslenska áhorfendur, sem gerast í íslenskum veruleika. Til að mynda er það svo merkilegt hvað það er mismunandi á milli landa hvar fólk hlær. Við erum spennt að heyra hversu mikið Íslendingar hlæja og hvar.“