Myndir Rúnars Rúnarssonar sýndar fyrir fullum sal í Toronto
Í gærkvöldi voru myndirnar Ljósbrot og O (Hringur) eftir Rúnar Rúnarsson sýndar fyrir fullum sal á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto (TIFF) í Kanada, sem er stærsta og jafnframt ein mikilvægasta kvikmyndahátíð Norður-Ameríku. Eftir mikil fagnaðarlæti og lófaklapp í lok sýningar, sátu Heather Millard framleiðandi og Rúnar leikstjóri fyrir svörum frá áhorfendum, sem spurðu tvíeykið um gerð myndarinnar. Uppselt er á allar sýningar myndanna á hátíðinni.
Óvenjuleg staða
Jason Anderson, einn af dagskrárstjórum TIFF, kynnti myndirnar og sagði að þær séu sýndar saman, þrátt fyrir að þær séu í ólíkum flokkum á hátíðinni, vegna hinar óvenjulegu stöðu að einn og sami leikstjórinn sé með kvikmynd og stuttmynd á hátíðinni.
Um Ljósbrot sagði hann meðal annars: „Elín Hall festir sig í sessi sem einn af mest sannfærandi ungu leikurum evrópskra kvikmynda með undraverðri og djúpstæðri frammistöðu. Með henni er leikarahópur sem er jafn óttalaus og leikstjóri sem getur lagt áherslu á gildi ástar og tengsla sem og sýnt hvernig þau geta myndast á myrkustu augnablikum sorgarinnar.”
Um O (Hring) sagði hann að myndin sé „áhrifamikil rannsókn á breyskleika mannsins,“ sem sé borin uppi af mögnuðum leik Ingvars Sigurðssonar.
Ljósbrot er í Centrepiece-flokki hátíðarinnar sem einblínir á nýjar samtímamyndir eftir þekkta leikstjóra og á myndir sem skara fram úr á líðandi stundu. Ljósbrot hefur farið sigurför um heiminn eftir að hafa hlotið standandi lófaklapp sem opnunarmynd Un Certain REgard á Kvikmyndahátíðinni í Cannes. Eftir það hefur myndin hlotið fimm alþjóðlegu kvikmyndaverðlaun og verið valin í forval til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna.
O (Hringur) er ljóðræn frásögn af manni sem vill standa sig en hans helsta hindrun er hann sjálfur. Stuttmyndin var heimsfrumsýnd fyrir viku síðan á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Feneyjum og í Toronto er myndin í keppni um aðalverðlaunin í sínum flokki, sem veita sjálkrafa rétt að forvali fyrir Óskarsverðlaunin 2025 en Rúnar var einmitt tilnefndur til þeirra árið 2006 fyrir Síðasta bæinn.
Nýr og spennandi kafli
„Það er gaman að við séum komin vestur um haf að sýna myndirnar okkar“ segir Rúnar. „Hérna tekur við nýr og spennandi kafli. Þegar hefur verið lagður góður grunnur fyrir báðar myndir þegar kemur að þáttöku og keppni á kvikmyndahátíðum hérna í álfunni. Vonum við auðvitað að myndirnar eiga sama láni að fagna hérna eins og annars staðar sem myndirnar hafa farið. Einnig erum við erum á lokametrunum að loka dreifingarsamningi fyrir Norður-Ameríku þannig að það eru spennadi tímar framundan.“
„Við erum auðvitað orðlaus yfir þessari velgengni og viðurkenningum beggja mynda og nú að vera komin til Toronto sem er stóra sviðið í Norður Ameríku,“ segir Heather Millard framleiðandi. „Þetta er viðurkenning fyrir okkur öll sem komum að þessum myndum, sem og fyrir Íslenska kvikmyndagerð.”