Um KMÍ
Á döfinni

6.9.2024

Ljósvíkingar frumsýnd

Kvikmyndin Ljósvíkingar, í leikstjórn Snævars Sölva Sölvasonar, er frumsýnd á Íslandi 6. september

Þegar tveir aldagamlir vinir fá óvænt tækifæri til að hafa fiskveitingastaðinn sinn opinn árið um kring, kemur annar þeirra út úr skápnum sem transkona.

https://www.youtube.com/watch?v=pTUoPPEIcgM

Snævar Sölvi Sölvason skrifar einnig handrit myndarinnar. Framleiðendur eru Júlíus Kemp og Ingvar Þórðarson.

Með aðalhlutverk fara Björn Jörundur Friðbjörnsson, Arna Magnea Danks, Sólveig Arnarsdóttir og Ólafía Hrönn Jónsdóttir. Í öðrum helstu hlutverkum eru Helgi Björnsson, Hjálmar Örn Jóhannsson, Vigdís Hafliðadóttir, Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Pálmi Gestsson og Gunnar Jónsson.