Um KMÍ
Á döfinni

8.3.2024

Myndirnar sem keppa í Sprettfisk 2024

Tuttugu myndir hafa verið valdar til þátttöku í Sprettfisk, sem er stuttmyndakeppni kvikmyndahátíðarinnar Stockfish. Markmið keppninnar er að vekja athygli á upprennandi kvikmyndagerðarfólki og hvetja það til góðra verka með verðlaunum sem geta lagt grunninn að næsta verkefni.

RÚV og KUKL tækjaleiga leggja til verðlaunin. Verðlaunamyndirnar verða sýndar á RÚV og verða aðgengilegar í spilara RÚV. 

75 myndir voru sendar inn í keppnina að þessu sinni. Verðlaun eru veitt í fjórum flokkum:

BESTA LEIKNA STUTTMYNDIN

Fár - Gunnur Martinsdóttir Schlüter

Route 7 - Óskar Þorri Hörpuson

High Tide - Arina Vala Thordardottir

Alone - Þura Stína Kristleifsdóttir

Showers - Logi Sigursveinsson

 

BESTA STUTTA HEIMILDAMYNDIN

Hafey - Hanna Hulda Hafthorsdottir

Empath fridges - Rakel Jónsdóttir

New Life - Andri Freyr Gilbertsson

Mountain Saga - Edda Sól Jakobsdóttir

Misplaced - Michelle Pröstler

 

BESTA STUTTA TILRAUNAMYNDIN

If I Die, Will I Go Home? - Peter Thor

Soulmates - Alda Ægisdóttir

That's Just How It Is - Björk Magnúsdóttir, Askur Benedikt Árnason Nielsen

Vagus Symphony - Hanna Björk Valsdóttir

Fragments of the Attempt - Steiní Kristinsson

 

BESTA TÓNLISTARMYNDBANDIÐ

Yfir skýin - Lúpína, Hanna Hulda Hafþórsdóttir

Solarr - Talos, Máni M. Sigfusson

Problems - Flesh Machine, Snæfríður Sól Gunnarsdóttir

Spiritus Naturae Aeternus - Dustin O'Halloran, Markus Englmair

Holdgervingur Lauslætis + Imagine A Woman - Kristína Rannveig Jóhannsdóttir, Freyja Vignisdóttir

Frekari upplýsingar á vef Stockfish.