Um KMÍ
Á döfinni

3.2.2023

Napóleonsskjölin frumsýnd

Napóleonsskjölin, ný íslensk kvikmynd sem byggist á samnefndri skáldsögu Arnaldar Indriðasonar, verður frumsýnd í íslenskum kvikmyndahúsum í dag, 3. febrúar. 

Myndin segir frá Kristínu, metnaðarfullum lögfræðingi sem dregst inn í óvænta atburðarás þegar bróðir hennar rambar fram á flugvélaflak úr seinni heimsstyrjöldinni uppi á Vatnajökli. Kristín og háskólaprófesssorinn Simon Rush þurfa á öllu sínu að halda til þess að komast undan valdamiklum aðilum sem svífast einskis til þess að komast yfir leyndardóminn sem flugvélaflakið geymir.

https://www.youtube.com/watch?v=ADeSgvtcMf8

Með aðalhlutverk fara Vivian Ólafsdóttir (Leynilögga), Jack Fox (Riviera), Iain Glen (Game of Thrones), Ólafur Darri Ólafsson, Adesuwa Oni (The Witcher), Annette Badland (Ted Lasso), Atli Óskar Fjalarsson og Þröstur Leó Gunnarsson.

Leikstjóri myndarinnar er Óskar Þór Axelsson, handrit er eftir Martein Þórsson. Framleiðendur eru Tinna Proppé, Hilmar Sigurðsson, Dirk Schweitser og Anita Elsani.

Sagafilm framleiðir myndina í samstarfi við þýska fyrirtækið Splendid Films. Beta Cinema sér um alþjóðlega dreifingu og hefur myndin þegar verið seld til lykilsvæða ; Frakklands, Spánar, Póllands, ríkja fyrrum Júgóslavíu, Japans og Tævan.