Um KMÍ
Á döfinni

31.5.2023

Norrænar myndir í brennidepli í Transilvaníu – opnunarmyndin íslensk

Norrænar kvikmyndir verða í brennidepli á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Transilvaníu í ár. Hátíðin fer fram 9.-18 júní í borginni Cluj-Napoca í Rúmeníu og verða myndirnar sýndar undir merkjum Scandinavian Films, regnhlífarsamtökum norrænna kvikmyndastofnana og -miðstöðva, í samstarfi við sendiráð Íslands, Danmörku, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar.

Þrjár leiknar kvikmyndir frá Íslandi verða þar sýndar. Það eru myndirnar Á ferð með mömmu, eftir Hilmar Oddsson, Svar við bréfi Helgu, í leikstjórn Ásu Helgu Hjörleifsdóttur, og Northern Comfort, í leikstjórn Hafsteins Gunnars Sigurðssonar, sem er opnunarmynd hátíðarinnar í ár. 

Northern Comfort var heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni South by Southwest í Texas í Bandaríkjunum í mars.

Heimildamyndin Mannvirki, eftir Gústav Geir Bollason, verður einnig sýnd á hátíðinni, í flokki sem nefnist Smart7. Norrænt sjónvarpsefni á þar einnig sinn stað og verða fyrstu tveir þættir Verbúðarinnar sýndir í flokki sem nefnist Coming up Next. Einnig verður boðið upp á sýningar á sígildum myndum frá Norðurlöndum, þar á meðal verður kvikmynd Reynis Oddssonar, Morðsaga frá 1977, á dagskrá.

Frekari upplýsingar um hátíðina og dagskrána má finna á vef TIFF – alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Transilvaníu.