Ný stjórn kjörin á aðalfundi SÍK
Ný stjórn var kjörin á aðalfundi Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda (SÍK), sem fór fram 22. júní.
Agnes Johansen (RVK Studios) og Hanna Björk Valsdóttir (Akkeri Films) voru kosnar í sæti meðstjórnenda til tveggja ára og Heather Millard (Compass Films) var kosin í sæti varamanns til tveggja ára. Anton Máni Svansson, formaður, klárar síðara ár af tveimur og Inga Lind Karlsdóttir og Hilmar Sigurðsson, klára síðara ár af tveimur sem meðstjórnendur. Kristinn Þórðarson, klárar síðara ár af tveimur sem varamaður.
Átta ný aðildarfyrirtæki hafa sótt um aðild að félaginu á árinu, sem er til marks um mikla grósku íslenskrar kvikmyndagerðar. Þau eru: Fenrir Films, GunHil, Akkeri Films, Compass Films, NRDR, Go to Sheep, RVK Studios og Mystery Ísland. Alls eru 39 fyrirtæki með aðild að SÍK.
Á fundinum fór Anton Máni Svansson, formaður SÍK, yfir stöðu kvikmyndaiðnaðar á Íslandi ásamt því að fara yfir störf stjórnar á liðnu ári. Þar ber helst að nefna fjármögnun og framtíð fyrirkomulags við úthlutun Kvikmyndasjóðs og fyrirhugaðar breytingar vegna áforma um uppsetningu á sjónvarpssjóði, áhrif innleiðingar á DSM tilskipuninni sem kveður á um sanngjarna og hlutfallslega þóknun til listflytjenda, ný vefsíða sambandsins hefur verið tekin í notkun, gjaldtaka á erlendar streymisveitur og samráð við Kvikmyndamiðstöð Íslands.
Hilmar Sigurðsson, gjaldkeri SÍK, kynnti gagnsæisskýrslu félagsins vegna ársins 2022 og greindi frá úthlutun IHM rétthafagreiðslna vegna ársins 2020 og núverandi úthlutun fyrir árið 2021. Þá lagði Hilmar fram endurskoðaða ársreikninga félagsins til samþykktar.
Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum hélt Gísli Snær Erlingsson, forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar, erindi um stefnu og framtíðarsýn Kvikmyndamiðstöðvar. Undir lok fundar var boðið upp á spurningar og sköpuðust áhugaverðar umræður um umsóknarferli framleiðenda hjá Kvikmyndamiðstöð og samráðsferli vegna nýrrar reglugerðar um Kvikmyndasjóð.