Um KMÍ
Á döfinni

17.4.2019

Nýr gagnagrunnur um evrópskar kvikmyndir settur á fót: LUMIERE VOD

Framkvæmdastjórn ESB ásamt European Audiovisual Observatory opnuðu í gær nýjan gagnagrunn um evrópskar kvikmyndir, í því skyni að auka gagnsæi varðandi VOD (video-on-demand) þjónustu. Verkefninu er stjórnað af European Audiovisual Observatory sem Creative Europe styður við. 

Gagnagrunnurinn gefur bæði almenningi og fagaðilum tækifæri til að sjá hvar sé hægt að nálgast evrópskar kvikmyndir á vefnum.

Gagnagrunnurinn sem kallast LUMIERE VOD hefur að geyma upplýsingar um yfir 35 þúsund evrópskar kvikmyndir sem má finna á VOD leigum í 28 Evrópulöndum. Þar til nú hefur ekki verið til staðar slíkur gagnagrunnur yfir evrópskar kvikmyndir.

Hér má lesa nánar um gagnagrunninn.