O (Hringur) eftir Rúnar Rúnarsson heimsfrumsýnd í Feneyjum
Nýjasta verk Rúnars Rúnarssonar, O (Hringur), með Ingvari E. Sigurðssyni í aðalhlutverki , verður heimsfrumsýnt á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í dag. O (Hringur) keppir þar um aðalverðlaunin í flokki stuttmynda. Myndin er ljóðræn frásögn af manni sem vill standa sig en hans helsta hindrun er hann sjálfur.
Í nýrri stiklu fyrir myndina má heyra frumsamda tónlist eftir tónskáld myndarinnar Kjartan Sveinsson, sem oft er kenndur við Sigurrós.
https://www.youtube.com/watch?v=eW2Y5IntkAM
Nýjasta kvikmynd Rúnars í fullri lengd, Ljósbrot, var frumsýnd á Íslandi í síðustu viku og verður O (Hringur) sýnd á undan myndinni í Bíó Paradís frá og með deginum í dag.
Feneyjarhátíðin er ein sú elsta og virtasta í heimi. Hún er, ásamt kvikmyndahátíðinni í Cannes, talin önnur af tveimur mikilvægustu hátíðum heims. Þar safnast saman kvikmyndamógúlar, leikstjórar og heimsfrægir leikarar, ganga rauða dregilinn og fara á heimsfrumsýningar.
Rúnar segir þetta mikið ævintýri. „Það er mikill heiður að myndin okkar var valin hingað og hefur það þegar haft mikil áhrif á áframhaldandi dreifingu myndarinnar. Það var hæfileikaríkur hópur sem kom að gerð þessarar myndar og erum við þeim þakklát. Margir úr sama hóp gerðu einnig með okkur Ljósbrot.“