O (Hringur) eftir Rúnar Rúnarsson valin til keppni í Feneyjum
Á blaðamannafundi klukkan tíu í morgun tilkynnti Alberto Barbera, listrænn stjórnandi hinnar virtu kvikmyndahátíðar í Feneyjum, fyrstu myndirnar sem hafa verið valdar fyrir komandi hátíð í haust.
Nýjasta stuttmynd leikstjórans Rúnars Rúnarssonar, O (Hringur), með Ingvari Sigurðssyni í aðalhlutverki, var valin til að keppa um aðalverðlaun í stuttmyndakeppni hátíðarinnar.
O er ljóðræn frásögn af manni sem vill standa sig en hans helsta hindrun er hann sjálfur.
Verður þetta í áttugasta og fyrsta skiptið sem hátíðin fer fram, sem gerir hana að einni þeirri elstu í heiminum. Á hverju ári bítast tvær virtustu kvikmyndahátíðar heims, Feneyjar og Cannes, um að frumsýna helstu myndir ársins.
Það hefur verið skammt stórra högga á milli hjá Rúnari í ár en í vor frumsýndi hann kvikmyndina Ljósbrot sem opnunarmynd á kvikmyndahátíðinni í Cannes og hlaut myndin standandi lófaklapp áhorfenda í fimm mínutur sem og jákvæða dóma kvikmyndagagnrýnenda. Til að mynda hafa helstu kvikmyndatímarit heims, Hollywood Reporter og Screen Daily, sett Ljósbrot á sína lista yfir bestu myndirnar á Cannes þetta árið.
„Við erum náttúrulega voðalega ánægð með þennan heiður sem myndirnar okkar hafa hlotið,“ segir Rúnar. „Þetta er mikið til sama fólkið sem er á bakvið myndavélina sem kemur að bæði O og Ljósbrot. Við erum ótrúlega stolt af og þakklát þessu fólki. Þessi vegferð sem O og Ljósbrot eru á, eru einnig gríðarleg viðurkenning fyrir íslenska kvikmyndagerð. Fyrir það mikla starf sem stjórnvöld og einkaaðilar hafa unnið undanfarin ár.“
Eftirvæntingin fyrir því að frumsýna myndirnar á Íslandi er mikil, segir Heather Millard framleiðandi. „Við byrjum á Ljósbroti um miðjan ágúst, í samstarfi við Sambíóin. Þó að myndin hafi verið að fá upphefð erlendis að þá erum við að gera mynd fyrir íslenska áhorfendur, mynd sem gerist í íslenskum veruleika. Húmor flyst ekki alltaf á milli landa. Við erum svolítið spennt að heyra hversu mikið íslendingar hlæja og hvar, miðað við áhorfendur í Cannes.“
„Skilmálar stóru hátíðanna eru að þar séu heimsfrumsýningar,“ segir Rúnar. „Þannig að eftir Feneyjar í byrjun september að þá munu myndirnar vera sýndar saman í ákveðnum kvikmyndahúsum. Íslendingar vita hversu góður leikari Ingvar Sigurðsson er, þannig að það er svo sem ekkert nýtt. En hann er alveg ótrúlegur í þessari mynd. Ein hans besta framistaða, ef ekki sú besta.“
O er fjórða stuttmynd Rúnars sem vekur athygli á heimsvísu. Hinar þrjár eru Krossgötu þríleikurinn (Síðasti bærinn, Smáfuglar og Anna) sem hlutu um eitthundrað alþjóðleg verðlaun og fengu einnig ýmsar aðrar viðurkenningar. Til að mynda var Síðasti bærinn tilnefndur til Óskarsverðlauna árið 2006. Eftir Rúnar liggja einnig kvikmyndirnar; Eldfjall, Þrestir, Bergmál og Ljósbrot, sem hafa verið valdar á sumar af helstu kvikmyndahátíðum heims og unnið fjölda verðlauna.