Um KMÍ
Á döfinni

16.9.2025

O (hringur) hlýtur áhorfendaverðlaun á Spáni

Stuttmyndin O (Hringur), með Ingvar E. Sigurðsson í aðalhlutverki, hlaut um helgina áhorfendaverðlaun alþjóðlegu kvikmyndahátiðarinnar í Bueu á Spáni.

Myndin er ljóðræn frásögn af manni sem vill standa sig en hans helsta hindrun er hann sjálfur. Myndin var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í haust og hefur verið á ferðalagi um heiminn síðan. Eru þetta sextándu verðlaun myndarinnar og er hún einnig komin í forval Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna 2025 sem og í forval til Óskarsverðlaunanna 2026.

Rúnar Rúnarssonar er leikstjóri myndarinnar og framleiðandi er Heather Millard.