O (Hringur) í forvali til Óskarsverðlaunanna 2026
Stuttmyndin O (Hringur) með Ingvar E. Sigurðsson í aðalhlutverki, hlaut um helgina DANZANTE verðlaunin, sem eru aðalverðlaun 53. alþjóðlegu kvikmyndahátíðaðinnar í Huesca á Spáni. Rúnar Rúnarssonar er leikstjóri myndarinnar og framleiðandi er Heather Millard.
Með verðlaununum er myndin komin í forval til Óskarsverðlauna 2026.
Í umsögn dómnefndar segir að O (Hringur) sé sneisafull af hráum tilfinningum sem og sjónrænum ljóðum. „Myndin sýnir á fallegan hátt meistaralega frásagnarhæfileika Rúnars Rúnarssonar á aðeins 20 mínútum. Hún lýsir sálrænni nánd manns í vanda. Myndin býður upp á næma og fínlega upplifun þar sem hvert smáatriði hefur mikla vigt.“
„Við erum auðvitað í skýjunum eftir að við fengum þessar frábæru fréttir,“ segir Heather Millard, framleiðandi. „Þetta er búið að vera mikið ævintýri. Rúnar var auðvitað tilnefndur til Óskarsverðlaunna 2006 fyrir Síðasta bæinn og kom það einmitt eftir að hafa unnið DANZANTE verðlaunin 2005 fyrir þá mynd.
Við frumsýndum bæði Ljósbrot og O (Hringur) á síðasta ári og hefur þetta verið ótrúlegt ár fyrir báðar myndir. Við erum svo stolt af öllu því frábæra fólki sem vann við þessar myndir og gerðu þær að veruleika.”
O (Hringur) var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum haustið 2024. Myndin hefur síðan verið sýnd á fjölmörgum alþjóðlegum kvikmyndahátíðum. Þetta eru elleftu verðlaun myndarinnar og er hún einnig í forvali Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna 2025.