Um KMÍ
Á döfinni

5.6.2025

O (Hringur) verðlaunuð í Búdapest

O (Hringur), með Ingvari E. Sigurðssyni í aðalhlutverki, hlaut sérstök dómnefndarverðlaun á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni Friss Hús, sem fór fram  í Búdapest í Ungverjalandi 29. maí-4. júní. Rúnar Rúnarssonar er leikstjóri myndarinnar og framleiðandi er Heather Millard.

O (Hringur) er ljóðræn frásögn af manni sem vill standa sig en hans helsta hindrun er hann sjálfur. Myndin var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum síðasta haust og hefur verið á ferðalagi um heiminn síðan. Eru þetta tíundu verðlaun myndarinnar og er hún einnig komin í forval Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna 2025.