Um KMÍ
Á döfinni

30.6.2025

O (Hringur) verðlaunuð í Slóvakíu

Stuttmyndin O (Hringur), í leikstjórn Rúnars Rúnarssonar, hlaut sérstök dómnefndarverðlaun á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni IFF ART FILM festival í Košice.

Úrskurður dómnefndarinnar var svohljóðandi: „Sönn og fíngerð mynd, rífur úr manni hjartað er hún sýnir hráleika fíknar. Meistaralega gerð.“

Þetta eru tólftu alþjóðlegu verðlaunin sem myndin fær. Fyrir skemmstu komst hún í forval til Óskarsverðlaunanna 2026 og er hún einnig í forvali Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna 2025.

O (Hringur) var heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum haustið 2025. Myndin er ljóðræn frásögn af manni sem vill standa sig en hans helsta hindrun er hann sjálfur.

Ingvar E. Sigurðsson fer með aðalhlutverk myndarinnar. Framleiðandi er Heather Millard hjá Compass Films.

Ljósmynd: Frá heimsfrumsýningu O (Hringur) á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum. 2025. Frá vinstri: Ingvar E. Sigurðsson, Rúnar Rúnarsson og Edda Arnljótsdóttir.