Um KMÍ
Á döfinni

16.2.2023

Opið fyrir innsendinar í Sprettfisk

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Sprettfisk, stuttmyndasamkeppni Stockfish kvikmyndahátíðarinnar sem haldin verður í níunda sinn dagana 23. mars – 2. apríl í Bíó Paradís. Umsóknarfrestur er til 4. mars.

Keppt verður í fjórum flokkum:

  • Besta leikna stuttmyndin
  • Besta stutta heimildamyndin
  • Besta stutta tilraunamyndin
  • Besta tónlistarmyndbandið

Flokkarnir endurspegla þá grósku og fjölbreytni sem er í kvikmyndagerð hér á landi. Markmið keppninnar er að vekja athygli á upprennandi kvikmyndagerðarfólki og hvetja það til góðra verka með verðlaunum sem geta lagt grunninn að næsta verkefni. Verðlaunin koma frá KUKL tækjaleigu, Trickshot eftirvinnslu og RÚV. Verðlaunamyndirnar verða sýndar á RÚV og verða aðgengilegar í spilara RÚV.

Verðlaun

Besta leikna stuttmyndin

KUKL: 1.000.000 úttekt á tækjum

RÚV: 700.000 reiðufé

TRICKSHOT: 200.000 þjónusta og ráðgjöf

Best stutta heimildamyndin

KUKL: 500.000 úttekt á tækjum

RÚV: 700.000 reiðufé

TRICKSHOT 200.000 þjónusta og ráðgjöf

Besta stutta tilraunamyndin

KUKL: 250.000 úttekt á tækjum

RÚV: 300.000 reiðufé

TRICKSHOT: 200.000 þjónusta og ráðgjöf

Besta tónlistarmyndbandið

KUKL: 250.000 úttekt á tækjum

RÚV: 300.000 reiðufé

TRICKSHOT: 200.000 þjónusta og ráðgjöf

Þátttökuskilyrði

Myndin þarf að vera að hámarki 30 mínútna löng. Framleiðslu ekki lokið fyrir janúar 2022 og íslensk frumsýning nú á Stockfish 2023.

Aðeins íslensk verk eru tekin til greina þar sem höfundur/leikstjóri og/eða framleiðandi er íslenskur.

Tónlistarmyndbönd koma aðeins til greina ef leikstjórinn er íslenskur.

Tónlistarmyndbönd skulu gerð eftir frumsömdu lagi.

Innsendingar eru ókeypis og fara fram á Filmfreeway .

Tuttugu stuttmyndir sem valdar verða til keppni verða sýndar á sjálfri hátíðinni.