Um KMÍ
Á döfinni

16.9.2021

Opið fyrir skráningar í stuttmyndakeppni Sólveigar Anspach 2022

Stuttmyndakeppni í nafni leikstjórans Sólveigar Anspach óskar eftir umsóknum. Lokað verður fyrir skráningar þann 30. október 2021.

Sólveigar Anspach samkeppnin er opin stuttmyndum sem konur hafa leikstýrt. Keppnin er samvinna á milli Frönsku kvikmyndahátíðarinnar og RVK Feminist Film Festival.

Skilyrði fyrir þátttöku eru eftirfarandi:

- að leikstjóri stuttmyndarinnar sé kona, með ríkisfang eða búsetu í frönskumælandi landi, eða sé íslensk eða búsett á Íslandi og hún hafi ekki haft framleiðslufyrirtæki á bak við sig í fleiri en þremur myndum.

- að myndin sé að hámarki 20 mínútna löng, að meðtöldum kreditlistum. Öllum myndum, sem fara fram yfir þessi mörk, verður umyrðalaust hafnað.

- að lokið hafi verið við myndina eftir 1. janúar 2019.

- að myndin sé á frönsku eða íslensku.

- að myndin sé með enskum texta.

- að myndin hafi verið skráð til keppni fyrir 30. október 2021 kl. 23:00 UTC samkvæmt skilyrðum sem tilgreind eru í 3. lið.

- að myndin sé á VIMEO formi eingöngu.

Dómnefnin afhendir tvö verðlaun, ein fyrir bestu stuttmyndina á frönsku og ein fyrir bestu stuttmyndina á íslensku.

Stuttmyndirnar, sem dómnefnd velur, verða sýndar á sérstakri kvöldvöku í Reykjavík (á Íslandi) sem hluti af RVK Feminist Film Festival í janúar 2022 og í Pantin í júní 2022 (í Frakklandi) sem hluti af stuttmyndahátíðinni Côté Court.

Sendiráð Íslands í París býður íslenska leikstjóranum, sem hlýtur verðlaunin, til Frakklands til þess að kynna mynd sína á stuttmyndahátíðinni Côté Court í Pantin.

Allar nánari upplýsingar um keppnina og hvernig skuli sækja um má finna hér.