Opið samtal með forstöðumanni Kvikmyndamiðstöðvar
Nýr forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, Gísli Snær Erlingsson, situr fyrir svörum á RIFF, alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, 2. október klukkan 16 í Norræna húsinu.
Þar ræðir hann meðal annars um sína framtíðarsýn. Samtalið verður leitt af fulltrúum fjögurra aðildarfélaga innan kvikmyndagerðar, þeim Antoni Mána Svanssyni, formanni SÍK, Ragnari Bragasyni formanni SKL, Steingrími Dúa Mássyni, formanni FK og Maríu Reyndal sem verður staðgengill Margrétar Örnólfsdóttur hjá FLH.
Viðburðurinn er opinn öllu fagfólki og nemendum í kvikmyndafræði og kvikmyndagerð og opnað verður fyrir spurningar í lok samtalsins. Viðburðurinn fer fram á íslensku.
Hægt er að skrá sig á vef RIFF.
Bransadagar RIFF fara fram 3.-7. október þar sem fram fara umræður um spennandi og áríðandi málefni í kvikmyndagerð, spjallað verður við heiðursgest ásamt fjölda tengslamyndunarviðburða.