Um KMÍ
Á döfinni

3.6.2025

Óséðar perlur og glænýjar íslenskar heimildamyndir á Skjaldborg

Skjaldborgarhátíðin fer fram á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina 6.-9. júní, þar sem frumsýndar verða 5 íslenskar heimildamyndir í fullri lengd og 8 íslenskar heimildastuttmyndir, auk kynningar á verkum í vinnslu.

Meðal mynda sem sýndar eru á hátíðinni og hafa verið styrktar af Kvikmyndamiðstöð eru eftirfarandi:

Paradís Amatörsins
Janus Bragi Jakobsson

https://www.youtube.com/watch?v=vaK_k7u52Jo

Á Íslandi, í Paradís Amatörsins, voru alltaf til menn sem tóku upp viðburði í fjölskyldum eða bæjarfélagi – áður en nokkur vissi almennilega til hvers. Í dag eru það ekki lengur viðburðir sem eru skrásettir, heldur sjálfsmyndir sem eru skapaðar. Og allt þetta efni endar á YouTube. Myndin byggir á efni frá mönnum úr fjórum kynslóðum sem allir hafa deilt lífi sínu á YouTube. Fyrrverandi forstjórinn Guðfinnur hefur myndað fjölskyldu sína í áratugi. Leigubílstjórinn Kári heldur í óperudrauma sína með aríusöng í íbúðinni í Hafnarfirði. Einstæðingurinn Sævar opinberar sig í leit að alvöru tengingu við aðra. Og síðast en ekki síst áhrifavaldurinn Karl Emil sem týnist í leit að sjálfum sér. Leikstjórinn Janus Bragi fylgir þessum fjórum mönnum eftir og rýnir í hvernig þeir, með deilingu eigin myndefnis, spegla það sem skiptir mestu í lífinu...

Myndin hlaut framleiðslustyrk 2023 (kr. 16.000.000), þróunarstyrk 2022 (kr. 3.000.000) og þróunarstyrkur 2021 (kr. 1.750.000).


Frá ómi til hljóms - tónlistin á dögum Sveins Þórar­ins­sonar amtskrifara
Ásdís Thoroddsen

https://vimeo.com/1075065286

Sveinn Þórarinsson amtskrifari (1821-1868) hélt dagbók frá unglingsaldri þar til hann lést. Dagbókarfærslur hans, sem lúta að tónlist eru leiðarstef í kvikmyndinni „Frá ómi til hljóms,“ sem fjallar um breytinguna sem varð í íslensku tónlistarlífi á 19. öld þegar ný hljóðfæri, nýjar tóntegundir og sönglög bárust frá meginlandinu. Myndin hlaut framleiðslustyrk 2024 (kr. 16.500.000) og handritsstyrk 2022 (kr. 600.000).


Bóndinn og verk­smiðjan

Barði Guðmundsson og Hrafnhildur Gunnarsdóttir

Hross á bæ í Hvalfirði veikjast eitt af öðru af völdum meintrar flúormengunar frá álverksmiðju í næsta nágrenni. Bóndinn á bænum mætir skilnings- og afskiptaleysi stjórnvalda og er sjálfur sagður bera ábyrgðina. Bóndinn leitar allra leiða til að komast að hinu sanna í málinu en á við ofurefli að etja.

Myndin hlaut framleiðslustyrk 2019 (kr. 13.000.000) og þróunarstyrk 2018 (kr. 1.200.000).


Musteri minn­inga
Erlendur Sveinsson

Jón í Myndbandavinnslunni sérhæfir sig í að færa gamlar upptökur í stafrænt form og þar með halda lífi í minningum Íslendinga sem annars gætu glatast. Skyggnst er inn í persónulegar sögur Jóns og viðskiptavina hans, og þróunina og tæknina sem liggur að baki varðveislu minninga í hinum ýmsu formum hreyfimyndarinnar.

Myndin hlaut framleiðslustyrk 2024 (kr. 4.500.000).


Hashtag t(o)úr
Margrét Seema Takyar

https://vimeo.com/1075047267

Halla Ólafsdóttir og Amanda Apetrea eru verðlaunadanshöfundar sem vinna oft sem tvíeykið Beauty & Beast. Í verkum sínum ögra þær bæði sýnilegum og ósýnilegum reglum feðraveldisins. Þegar #metoo brýst út á sama tíma og stóri túrinn þeirra virðist lífið loks vera endurspegla listina. Úti er ævintýri - eða?

Myndin hlaut þróunarstyrk 2023 (kr. 4.300.000).


Heiðursgestur og fjölbreyttir viðburðir

Heiðursgestur Skjaldborgar í ár er Alessandra Celesia, ítalskur leikstjóri sem hefur stundað heimildamyndagerð á Norður-Írlandi sem og í heimalandinu Ítalíu. Alessandra heldur fyrirlestur á hátíðinni, að lokinni sýningu á verðlaunamynd hennar The Flats (Íbúðirnar) laugardaginn 7. júní. Myndin hefur verið sýnd á fjölda hátíða og hlaut meðal annars aðalverðlaun CPH:DOX 2024 og IFTA, írsku kvikmyndaakademíuverðlaunin, fyrir bestu heimildamynd ársins.

Á hátíðinni stendur Kvikmyndasafn Íslands fyrir sýningu á kvikmynd Ósvalds Knudsens Surtur fer sunnan á hátíðinni, þar sem kvikmyndagerðarmaðurinn merki festi á filmu eldsumbrot í Vestmannaeyjum 1963 undir tónlist Magnúsar Blöndal. Auk þess sýnir Kvikmyndasafnið filmur Garðars Ó. Jóhannessonar sem kvikmyndaði daglegt líf á Patreksfirði 1948-1953. Þær hafa sennilega aldrei verið sýndar opinberlega og því um að ræða einstakt tækifæri til að virða fyrir sér mannlíf á miklum uppgangstímum á Patreksfirði. 

Auk kvikmyndasýninga verður boðið upp á fjölbreytta viðburði, svo sem skrúðgöngu, plokkfiskveislu og limbókeppni.

Hægt er að kynna sér dagskrá hátíðarinnar á vef Skjaldborgar .