Um KMÍ
Á döfinni

11.1.2023

RIFF í formlegt bandalag með sex evrópskum hátíðum

RIFF, alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, tekur þátt í samstarfi sjö evrópskra kvikmyndahátíða sem deila með sér þekkingu á ólíkum sviðum.

Í tilkynningu frá hátíðinni segir að markmið bandalagsins, sem ber heitið Smart7, sé að hátíðirnar njóti stuðnings hver af annarri og deili með sér þekkingu og reynslu á sama tíma og þær kynna evrópska kvikmyndagerð og vinna að þróun áhorfendahópsins. 

Samstarfsnetið er samsett af New Horizons kvikmyndahátíðinni pólsku í Wroclaw , IndieLisboa hátíðinni í Portúgal, kvikmyndahátíð Þessaloníku á Grikklandi, kvikmyndahátíð Transilvaníu í Rúmeníu, spænsku hátíðinni FILMADRID og kvikmyndahátíðinni í Vilníus í Litháen, auk RIFF, alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík.

„Samstarf þessara hátíða er ekki síst tilkomið vegna þess að þær deila sömu markmiðum og stefnu og hafa mjög áþekka framtíðarsýn,” segir Marcin Pieńkowski, listrænn stjórnandi New Horizons.

Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi RIFF, segir samstarfið hafa verið með óformlegum hætti í gegnum árin. „Smart7 er faglegur vettvangur sem gerir hátíðunum kleift að nýta til hins ítrasta þá sérþekkingu sem stjórnendur og starfsfólk hátíðanna hafa byggt upp í gegnum árin.“ Auk þess sem ætlunin sé að styðja við ungt hæfileikafólk á sviði kvikmynda með því að hafa sér flokk kvikmynda á þessum sjö hátíðum, ein mynd frá hverju landi og fá ungt fólk í dómnefnd sem velur bestu myndina en verðlaunaféð er 5000 evrur.

Vinnustofur um fagvæðingu, áhorfendaþróun, kynningarmál, sölu og fjármögnun auk sjálfbærni og grænna viðmiða verða skipulagðar næstu tvö árin sem standa munu starfsfólki kvikmyndahátíða til boða. 

Smart7 bandalag kvikmyndahátíða í Evrópu er styrkt af Creative Europe MEDIA sjóðnum. RIFF er borgarhátíð og verður haldin næsta haust frá 28. september til 8. október.