Um KMÍ
Á döfinni

6.6.2025

RIFF tekur þátt í Oulu Music Video Festival 2025

RIFF, alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, tekur þátt í OMVF keppninni um bestu norrænu tónlistarmyndböndin, sem haldin verður á vegum Oulu Music Video Festival (OMVF) árið 2025. Sem hluti af samstarfinu tekur RIFF þátt í forskoðunardómefnd keppninnar, sækir OMVF 2025 og skipuleggur sérstaka sýningu á norrænum tónlistarmyndböndum á RIFF 2025, dagana 25.september til 5. október.

Í tilkynningu hátíðarinnar segir að samstarfsvettvangurinn sem felst í keppninni sé mikilvægur fyrir skapandi tónlistarmyndbandagerðarfólk og kvikmyndagerðarfólk á Norðurlöndum. Til stendur að framkvæmdastjóri Oulu Music Video Festival, Juhani Oivo, heimsæki RIFF í haust og þeyti skífum við vel valið tilefni meðan á hátíð stendur. 

Elsta tónlistarmyndbandahátíðin – fyrsta keppnin

Oulu Music Video Festival er elsta tónlistarmyndbandahátíð heims. Þar fer fram i fyrsta sinn keppni um bestu Norrænu tónlistarmyndböndin. Keppnin er opin leikstjórum sem búa og starfa í Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi, Svíþjóð, Færeyjum, Grænlandi og Álandseyjum. Framlengdur skilafrestur er til 20. júní.

Sigurvegari keppninnar verður verðlaunaður á hátíðarkvöldi OMVF með sérhönnuðu listaverki eftir Irene Suosalo og fullkomnum Genelec 8351B SAM™ hátölurum að verðmæti 8.000 €, veittum af Genelec.

Oulu Music Video Festival fer fram dagana 21.–25. ágúst 2025 í Oulu, Norður-Finnlandi.

Norræna tónlistarmyndbandakeppnin hjá OMVF hefur hlotið styrk úr Menningar- og listaráætlun Norrænu ráðherranefndarinnar og er hluti af opinberri dagskrá Oulu 2026 – evrópsku menningarborgarinnar.