Um KMÍ
Á döfinni

26.4.2022

RVK Feminist Film Festival fer fram dagana 5. - 8. maí

Þann 5. til 8. maí næstkomandi mun RVK Feminist Film Festival verða haldin í þriðja sinn. Fókusinn í ár er á kynsegin málefni, aktívisma og konur með mismunandi menningarlegan bakgrunn og POC (People of Color).

Hin alþjóðlega kvikmyndahátíð RVK Feminist Film Festival verður haldin í þriðja sinn 5. - 8. maí í Bíó Paradís, Icelandair Marina Hotel og Veröld, húsi Vigdísar Finnbogadóttur, ásamt nokkrum vel völdum stöðum. Hátíðin í ár er hlaðin af kvikmyndum eftir konur frá nær öllum heimshornum, Indlandi, Frakklandi, Kenía, Austurríki, Brasilíu, Ameríku, Argentínu, Serbíu, Þýskalandi, Úkraínu og Póllandi svo eitthvað sé nefnt.

Styrktaraðilar hátíðarinnar eru Reykjavíkurborg, Iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið, Franska Sendiráðið á Íslandi, Sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi, Kvikmyndamiðstöð, Kvikmyndasafn Íslands, Marel, Kaffitár, Hringdu, Sendiráð Ísrales í Noregi og Íslandi, Sendiráð Portúgals í Noregi, Goethe Institute in Danmörku og Norræna Húsið.

Heiðursverðlaunahafi hátíðarinnar í ár er Kristín Jóhannesdóttir en hún mun taka við verðlaununum á opnunarkvöldinu 5. maí. Sýning á myndinni hennar Alma ásamt Q&A verður 8. maí kl. 15:00 í Veröld.

Opnunarviðburðurinn er 5. maí í Bíó Paradís. Þar verður stuttmyndin The Daiper Cake frumsýnd eftir úkraínska kvikmyndagerðarkonu, Anastasiu Babenko. Anastasia vann í handritinu að myndinni í Fabúlera stuttmyndahandritsnámskeiðinu hjá RVK FFF 2021. Opnunarmynd hátíðarinnar Rafiki er kvikmynd eftir Wanuri Kahiu og fjallar um raunir tveggja kvenna sem fella hugi saman en samkynhneigð er ólögleg í Kenía.

SYSTIR - Stuttmyndakeppni RVK FFF verður á sínum stað með verðlaunaafhendingu þann 6. maí í Veröld kl. 18:00. Í beinu framhaldi fer fram Networking Party þar sem verkefni og félagasamtök tengd konum í bransanum verða kynnt. Hátíðin mun fá erlendar leikstýrur til landsins, Sapna Moti B. sem sýnir mynd sína, My Dog is Sick, frá Indlandi og Mylissu Fitszimmons frá bandaríkjunum með mynd sína, Everything in the End, en hún er tekin upp hér á Íslandi.

Þá verða áhugaverð pallborð haldin þar sem sýnileiki kynsegin og transfólks í bransanum verður rætt - Queer, Hidden People in the Film Bizz. No Woman Alone fjallar um ofbeldi í nánum samböndum í víðu samhengi. Urðarbrunnur er úrræði fyrir konur í neyslu sem eru barnshafandi. Sendiherra EU á Íslandi ætlar að halda pallborð með fræknum konum sem starfa í opinbera geiranum - Running with an Invisible Backpack: Women in Public Life.

Lokaviðburður hátíðarinnar 8. maí eru Sólveig Anspach Verðlaunin í Bíó Paradís í samstarfi við Franska Sendiráðið á Íslandi. Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra mun afhenda verðlaunin.

Allar nánari upplýsingar um RVK Feminist Film Festival má finna á heimasíðu hátíðarinnar.