Samtök kvikmyndaleikstjóra stendur fyrir vinnusmiðju fyrir heimildamyndir - Umsóknarfrestur er 26. maí 2021
SKL stendur fyrir vinnusmiðju fyrir heimildamyndir í vinnslu. Smiðjan er haldin með stuðningi Kvikmyndamiðstöðvar Íslands.
Vinnusmiðjan er haldin í 3 daga í samvinnu við IceDocs á Akranesi sem fer fram dagana 23 – 27. júní. Nánari dagsetning verður staðfest þegar nær dregur. Smiðjan er fyrir heimildamyndir í vinnslu, hvort sem þær eru á handritsstigi, í tökum eða klippingu. Gert er ráð fyrir að sex verkefni taki þátt og farið verður yfir tvö verkefni á dag.
Ráðgjafi er Marta Andreu, sem hefur mikla reynslu sem leiðbeinandi. Hún hefur meðal annars verið einn af leiðbeinendum í Torino Film Lab, Eurodoc og Open Doors of Locarno Film Festival og fjölda annara vinnusmiðja. Marta er hluti af World Cinema Fund Program hjá Berlinale síðan 2011, þar velur hún verkefni á ýmsum framleiðslustigum sem hljóta styrki sjóðsins.
Smiðjan er þáttakendum að kostnaðarlausu fyrir utan ferðakostnað og fæði. Ef það þarf að fresta smiðjunni fram í haust (vegna Covid-19) getur verið að vinnusmiðjan fari fram annars staðar á landinu.
Umsókn skal fylgja synopsis, treatment og stutt lýsing um verkið og berast í tölvupósti á netfangið yrsarocafannberg@gmail.com. Nefnd velur út 10 verkefni og áframsendir til Mörtu Andreu sem sér um lokaval. Allar umsóknir skulu berast á ensku og smiðjan fer fram á ensku.
Umsóknarfrestur er 26. maí 2021.