Um KMÍ
Á döfinni

3.5.2023

Sautján íslenskar heimildamyndir frumsýndar á Skjaldborg

Heimildamyndahátíðin Skjaldborg fer fram á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina 26.-29. maí.

Hátíðin sérhæfir sig í frumsýna íslenskar heimildamyndir og þar koma saman reynsluboltar í faginu og eiga í skemmtilegu og skapandi samtali sem gegnir mikilvægu hlutverki fyrir þróun og miðlun íslenskrar heimildamyndagerðar.

Dagskráin er fjölbreytt en auk 17 frumsýndra heimildamynda verða kynnt verk í vinnslu, Kvikmyndasafn Íslands sýnir perlur úr sínu safni og Friðgeir Einarsson sýnir fyrirlestrarverkið blessbless.is. Pallborðsumræður verða haldnar í Skjaldborgarbíói um framtíð íslenskrar heimildamyndagerðar þar sem Margrét Jónasdóttir, aðstoðardagskrárstjóri RÚV og heimildamyndahöfundar og framleiðendur ræða um helstu málefnin í heimildamyndafaginu ásamt Helgu Brekkan, kvikmyndaráðgjafa hjá Kvikmyndamiðstöð Íslands.

Heiðursgestir hátíðarinnar í ár eru Corinne van Egeraat og Petr Lom, heimildamyndahöfundar og framleiðendur ZINDOC. Mannréttindi eru þeirra helsta viðfangsefni og dæmi um það er Myanmar Diaries sem kom út 2022 og hefur unnið til fjölda verðlauna.

Allar frumsýndar myndir keppa um áhorfendaverðlaunin Einarinn, dómnefndaverðlaunin Ljóskastarann og hvatningarviðurkenningu dómnefndar. Með Einarnum og Ljóskastaranum fylgir veglegt verðlaunafé í formi þjónustu frá tækjaleigunni Kukl og eftirvinnslufyrirtækinu Trickshot.

Eftirfarandi 17 myndir verða frumsýndar á hátíðinni:

Heimaleikurinn

Leikstjóri: Smári Gunnarsson, Logi Sigursveinsson
Framleiðandi: Stephanie Thorpe, Elfar Aðalsteins, Heather Millard, Freyja Kristinsdóttir
Framleiðslufyrirtæki: Silfurskjár

SKULD

Leikstjóri: Rut Sigurðardóttir
Framleiðandi: Rut Sigurðardóttir, Dögg Mósesdóttir
Framleiðslufyrirtæki: Bíóbúgí og Northern Wave Productions

Soviet Barbara - The story of Ragnar Kjartansson in Moscow

Leikstjóri: Gaukur Úlfarsson
Framleiðandi: Gaukur Úlfarsson, Guðrún Olsen, Guðni Tómasson, Freyr Árnason, Kristín Ólafsdóttir
Framleiðslufyrirtæki: Ofvitinn

Hlemmur Mathöll

Leikstjóri: Óli Hjörtur ÓIafsson
Framleiðandi: María Sif Daníelsdóttir

Tarfurinn

Leikstjóri: Helga Dís Hálfdanardóttir
Framleiðendur: Helga Dís Hálfdanardóttir, Ágústa Margrét Jóhannsdótir

Skessusystur

Leikstjóri: Halla Mía
Framleiðandi: Halla Mía

Konni

Leikstjórar: Þorbjörg Jónsdóttir og Lee Lynch
Framleiðendur: Þorbjörg Jónsdóttir og Lee Lynch

Skynjanir

Leikstjóri: Fanney Björk Ingólfsdóttir
Framleiðandi: Fanney Björk Ingólfsdóttir

Hvar ert þú nú?

Leikstjóri: Steiní Kristinsson
Framleiðandi: Steiní Kristinsson

A portrait of my sister on fire

Leikstjóri: Gabríel Elí Jóhannsson
Framleiðandi: Gabríel Elí Jóhannsson

Super Soldier

Leikstjóri: Arna Tryggvadóttir
Framleiðandi: Arna Tryggvadóttir

Fjárlög veiranna

Leikstjóri: Herbert Sveinbjörnsson
Framleiðandi: Margrét Hrafnsdóttir

Clair de lune

Leikstjóri: Júlía Óskarsdóttir
Framleiðandi: Júlía Óskarsdóttir

Á ekki bara að henda þessu?

Leikstjóri: Ragnheiður Maísól Sturludóttir
Framleiðandi: Ragnheiður Maísól Sturludóttir

Hvar endar þetta?

Leikstjóri: Valka - Valborg Salóme Ingólfsdóttir
Framleiðandi: Valborg Salóme Ingólfsdóttir

Mamma

Leikstjóri: Inga Óskarsdóttir
Framleiðandi: Inga Óskarsdóttir

Uppskrift: Líf eftir dauðann

Leikstjóri: Bergþóra Ólöf Björnsdóttir
Framleiðandi: Bergþóra Ólöf Björnsdóttir

Frekari upplýsingar um dagskrána í ár má finna á vef hátíðarinnar.