Serial Eyes óskar eftir umsóknum
Þýska kvikmynda- og sjónvarpsakademían í Berlín (DFFB) óskar eftir umsóknum fyrir „Serial Eyes – Experiencing the Writer‘s Room“ námskeiðið.
Um er að ræða 8 mánaða námskeið sem fer fram í Berlín og verður kennt frá september 2015 til maí 2016. 12 þátttakendur verða valdir til þátttöku og munu fá ómetanlega handleiðslu fagfólks á sviði þróunar og framleiðslu þáttaraða af ýmsu tagi.
Almennur umsóknarfrestur rennur út 16. mars og síðari umsóknarfrestur rennur út 31. mars.
Um heilt námsár er að ræða og innifalið í námskeiðinu er m.a. kennsla kúrsins hjá DFFB, tveggja vikna kennsla hjá London Film School í Lundúnum, vinnustofa MIPTV í Cannes og vinnustofa hjá danska kvikmyndaskólanum í Kaupmannahöfn. Vel þekktir þáttaraðastjórnendur á við Frank Spotnitz, Ben Harris og Jeffrey Bell munu halda fyrirlestra.
Allar nánari upplýsingar um námskeiðið og hvernig skuli sækja um má nálgast á vef Serial Eyes.