Á döfinni
Sex íslensk kvikmyndaverk á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Tromsø
Íslensk kvikmyndagerð verður áberandi á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Tromsø, sem fer fram 13.-19. janúar 2025.
Í heildina verða sex íslensk kvikmyndaverk sýnd á hátíðinni; stuttmyndir, kvikmyndir og heimildamynd.
Stuttmyndirnar eru O (hringur) í leikstjórn Rúnars Rúnarssonar, og Veður ræður ákri, en vit syni í leikstjórn Kötlu Sólnes.
Kvikmyndirnar eru Missir í leikstjórn Ara Alexanders Ergis Magnússonar, Natatorium í leikstjórn Helenu Stefánsdóttur og Snerting í leikstjórn Baltasars Kormáks.
Heimildamynd Pamelu Hogan, Dagurinn sem Ísland stöðvaðist, sem hún gerði í samstarfi við Hrafnhildi Gunnarsdóttur framleiðanda, verður einnig sýnd á hátíðinni.