Sjöundu alþjóðlegu verðlaun Ljósbrots
Kvikmyndin Ljósbrot, eftir Rúnar Rúnarsson, hlaut verðlaun samtaka evrópskra kvikmyndahátíða fyrir yngri áhorfendur á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni Schlingel í Þýskalandi, sem fram fór í byrjun október.
Daniela Adomat formaður dómnefndar fór fögrum orðum um Ljósbrot í ræðu sinni. „Með naumhyggju og listrænni nálgun fangar Ljósbrot tilfinningalega dýpt og sýnir kraft samkenndar og vináttu á erfiðum tímum.“
Myndin hefur farið mikla sigurför um heiminn síðan hún var heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes síðasta vor, en þetta eru sjöundu alþjóðlegu verðlaunin sem hún hlýtur.
„Verðlaun sem þessi gefa kvikmyndum vængi og hjálpa þeim að ná til áhorfenda um allan heim. Við erum þakklát og stolt af okkar fólki sem gerði myndina að veruleika,“ segir Rúnar Rúnarsson leikstjóri.
Myndin er í forvali til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna og keppast alþjóðlegar kvikmyndahátíðir um að sýna hana. Þá hefur hún einnig selst vel og styttist í almennar sýningar á henni um allan heim.
Myndin gerist á fallegum vordegi þegar líf Unu snýst á hliðina á svipstundu og upphefst rússíbanareið tilfinninga. Þar sem mörkin milli hláturs og gráts, fegurðar og sorgar, verða stundum óskýr. Með aðalhlutverk fara, Elín Hall, Katla Njálsdóttir, Mikael Kaaber, Baldur Einarsson, Gunnar Kristjánsson og Ágúst Wigum.