Um KMÍ
Á döfinni

10.5.2022

Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildamynda fer fram dagana 3. - 6. júní á Patreksfirði

Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildamynda er svokölluð uppskeruhátíð heimildamyndahöfunda og sérhæfir sig í að frumsýna íslenskar heimildamyndir. 

Dagskráin í Skjaldborgarbíó á Patreksfirði verður fjölbreytt í ár auk heimildamynda og kynningu á verkum í vinnslu verður Kvikmyndasafn Íslands með sér dagskrárlið. Ari Eldjárn fylgir áhorfendum gegnum myndefni frá fjölskyldu sinni og Björg Sveinbjörnsdóttir frá Hversdagssafninu á Ísafirði gefur áhorfendum innsýn í hljóðin úr eldhúsi ömmu sinnar.

Þá verður heimamyndadagur hluti af hátíðinni og einn dagskrárliðurinn er því óborganlegt heimamyndabingó sem spilað er upp úr heimagerðu myndefni Vestfirðinga. Á heimamyndadegi taka sérfræðingar Heimamyndasamsteypunnar við heimagerðum hreyfimyndum fólks á ýmsum miðlum; filmum af háaloftinu, vídeóspólum eða stafrænu efni. Farið er yfir ástand efnisins og það lagfært – og úrval heimamynda verður sýnt á stóra tjaldinu!

Heiðursgestur hátíðarinnar í ár er Magnus Gertten en hann er margverðlaunaður heimildamyndagerðarmaður frá Svíþjóð. Hann hlaut Teddy verðlaunin á Berlinale fyrr á þessu ári fyrir heimildamyndina Nelly & Nadine sem verður jafnframt opnunarmynd Skjaldborgar í ár.

Skjaldborg-magnusgerttens-gul

Nelly & Nadine er ástarsaga tveggja kvenna sem felldu hugi á aðfangadag árið 1944 í Ravensbrück útrýmingarbúðunum. Þrátt fyrir aðskilnað síðustu mánuði seinni heimsstyrjaldarinnar náðu þær saman á ný og vörðu ævikvöldinu saman. Í verkinu afhjúpar dótturdóttir Nelly hina ótrúlegu og ósögðu sögu ástkvennanna sem nær yfir heimshöfin og samfélagsleg norm þess tíma.

Skjaldborg-Nelly

Einnig verður sýnd myndin Every Face has a Name í leikstjórn Gerttens sem byggir á dýrmætu sögulegu efni. Every Face Has a Name er mynd um mennskuna og marglaga merkingu frelsisins. Þann 28. apríl 1945 stigu hátt í tvö þúsund manns á land í Malmö eftir dvöl í útrýmingarbúðum nasista. Fest var á filmu þegar skipin lögðu að höfn og fólkið steig á land í nýfundið frelsið. Í verkinu leggur Magnus Gertten upp í þá vegferð að finna fólkið á myndunum, ljá þeim rödd og tengja við persónu nafnlausra andlitanna.

13 myndir verða sýndar á hátíðinni auk þess sem verk í vinnslu verða kynnt.

Tíu myndir verða frumsýndar á Skjaldborg en við þær sérstöku aðstæður sem sköpuðust í samfélaginu á undanförnum árum var Skjaldborg aflýst árið 2021 og því hefur þremur myndum frá því ári verið boðin þátttaka í hátíðinni.

Alexander
Leikstjóri: Óli Hjörtur Ólafsson

Framleiðandi: Óli Hjörtur Ólafsson og Arnór Gíslason

Árni
Leikstjóri: Allan Sigurðsson og Viktoría Hermannsdóttir

Framleiðandi: Allan Sigurðsson, Viktoría Hermannsdóttir og Sólmundur Hólm Sólmundarson

Börn kvótakerfisins
Leikstjóri: Björg Sveinbjörnsdóttir

Framleiðandi: Björg Sveinbjörnsdóttir

Díflissudúfa
Leikstjóri: Tatjana Dís Aldísar Razoumeenko

Framleiðandi: Tatjana Dís Aldísar Razoumeenko

Hvunndagshetjur
Leikstjóri: Magnea Björk Valdimarsdóttir

Framleiðandi: Júlíus Kemp, María Lea Ævarsdóttir og Magnea Björk Valdimarsdóttir

Hækkum rána
Leikstjóri: Guðjón Ragnarsson

Framleiðandi: Margrét Jónasdóttir

Í öruggum höndum
Leikstjóri: Hera Fjord

Framleiðandi: Hera Fjord

Moses í mynd
Leikstjóri: Helgi Jóhannsson

Framleiðandi: Ólafur Páll Torfason og Helgi Jóhannsson

Sundlaugasögur
Leikstjóri: Jón Karl Helgason

Framleiðandi: Jón Karl Helgason

Thinking about the Weather
Leikstjóri: Garðar Þór Þorkelsson

Framleiðandi: Jamie Mcdonald

Wandering Star
Leikstjóri: Ari Allansson

Framleiðandi: Ari Allansson

Vatnavísundurinn
Leikstjóri: Kamilla Gylfadóttir

Framleiðandi: Syros International Film Festival

Tídægra
Leikstjóri: Anní Ólafsdóttir og Andri Snær Magnason

Framleiðandi: Anní Ólafsdóttir og Andri Snær Magnason