Um KMÍ
Á döfinni

25.5.2022

Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildamynda verður haldin um hvítasunnuhelgina á Patreksfirði dagana 3. - 6. júní 2022

Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildamynda er svokölluð uppskeruhátíð heimildamyndahöfunda og sérhæfir sig í að frumsýna íslenskar heimildamyndir. Hátíðin fer fram fer fram um hvítasunnuhelgina á Patreksfirði.

13 myndir verða sýndar á hátíðinni auk þess sem verk í vinnslu verða kynnt. Dagskráin verður fjölbreytt og verða Kvikmyndasafn Íslands og Hversdagssafnið á Ísafirði með sér dagskrárliði, Ari Eldjárn skemmtir gestum og haldinn verður heimamyndadagur þar sem gestir eru hvattir til að koma með filmur og spólur úr geymslunni.

Heiðursgestur hátíðarinnar í ár er Magnus Gertten, en hann hlaut Teddy verðlaunin á Berlinale fyrir heimildamyndina Nelly & Nadine sem verður jafnframt opnunarmynd Skjaldborgar.

Dagskránni í Skjaldborgarbíói lýkur með uppistandi Ara Eldjárn. Að því loknu flykkjast Skjaldborgarar í skrúðgöngu frá Skjaldborgarbíói að Félagsheimili Patreksfjarðar þar sem verðlaunaafhending fer fram. Lokaball Skjaldborgar hefst að venju með kónga-dansi og limbókeppni í félagsheimilinu og stuðsveitin Celebs frá Suðureyri við Súgandafjörð spila fyrir dansi.

Á Skjaldborg eru veitt tvenn verðlaun; Dómnefndarverðlaunin Ljóskastarinn eru veitt af dómnefnd og í henni sitja Kristján Loðmfjörð, Hrönn Sveinsdóttir og Anna Gyða Sigurgísladóttir. Áhorfendaverðlaunin Einarinn eru veitt samkvæmt kosningu gesta hátíðarinnar. Sigurvegarar beggja verðlauna hljóta veglegt verðlaunafé frá Kukl, Trickshot og Pfaff.

Hátíðarpassar eru komnir í sölu á tix.is, en passinn veitir aðgang að ljúffengri sjávarréttaveislu, hinu margrómaða plokkfiskboði kvenfélagsins Sifjar, laugardagspartýi, uppistandi Ara Eldjárn, sveitaballinu með Celebs, aðgang að sundlauginni og dvöl á tjaldstæðinu meðan á hátíðinni stendur.

Nánari upplýsingar er að finna á www.skjaldborg.is