Skjaldborg hreiðrar um sig í Bíó Paradís
Heimildamyndahátíðin Skjaldborg, sem haldin er árlega um hvítasunnu á Patreksfirði, stendur fyrir viðburðum og sýningum á völdum myndum úr dagskrá nýliðinnar hátíðar í Bíó Paradís dagana 15.-16. september.
Helgin hefst með meistaraspjalli með Mörtu Andreu, framleiðanda og ráðgjafa við þróun heimildamynda, föstudaginn 15. september kl. 10:00-13:00. Meistaraspjalli fer fram í samstarfi við höfundasmiðjur SKL í umsjón Yrsu Roca Fannberg.
Laugardaginn 16. september kl. 13:30 fara fram pallborðsumræður um framtíð heimildamyndagerðar á Íslandi. Þátttakendur í pallborðinu eru Gísli Snær Erlingsson, forstöðumaður Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, Helga Brekkan, ráðgjafi við Kvikmyndamiðstöð Íslands, Margrét Jónasdóttir, aðstoðardagskrárstjóri RÚV, og höfundar og framleiðendur innan heimildamyndafagsins á Íslandi. Stjórnandi pallborðsins er Kristín Andrea Þórðardóttir.
Aðgangur að meistaraspjallinu og pallborðsumræðunum er gjaldfrjáls.
Sýndar verða heimildamyndirnar Skuld, sem hlaut hvatningarverðlaun dómnefndar Skjaldborgar, og Heimaleikurinn, sem hlaut áhorfendaverðlaun á hátíðinni. Einnig verður stuttmyndaveisla á dagskrá.
Frekari upplýsingar um dagskrána má finna á vef Bíós Paradísar .