Um KMÍ
Á döfinni

25.8.2021

Skjálfti eftir Tinnu Hrafnsdóttur hluti af Industry Selects í Toronto

Kvikmyndin Skjálfti eftir Tinnu Hrafnsdóttur hefur verið valin í Industry Selects hluta alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Toronto. Industry Selects fer fram samhliða hátíðinni, dagana 9. - 18. september, þar sem valdar kvikmyndir eru aðgengilegar þeim fagaðilum sem sækja hátíðina.  

Skjálfti er er fyrsta leikna kvikmynd Tinnu í fullri lengd, en hún leikstýrir og skrifar handritið að myndinni sem byggð er á skáldsögu Auðar Jónsdóttur. Minningar sem Sögu hafði tekist að bæla niður sem barn koma skyndilega upp á yfirborðið og neyða hana til að horfast í augu við sannleikann um sjálfa sig. 

Myndin er framleidd af Hlín Jóhannesdóttur fyrir Ursus Parvus og með aðalhlutverk fara Aníta Briem, Edda Björgvinsdóttir og Jóhann Sigurðsson.  Myndin verður frumsýnd í byrjun næsta árs.

Allar nánari upplýsingar um Alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Toronto má finna hér.