Snerting tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs
Snerting eftir leikstjórann, handritshöfundinn og framleiðandann Baltasar Kormák, handritshöfundinn Ólaf Jóhann Ólafsson og framleiðandann Agnesi Johansen, er á meðal sex norrænna kvikmynda sem tilnefndar eru til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2024.
Í rökstuðningi dómnefndar segir:
Í þessari spennandi ástarsögu segir Baltasar Kormákur frá manni sem leitar löngu glataðrar ástar og leggur upp í tilfinningaþrungið ferðalag sem ber hann aftur í tímann til mikils mótunartímabils á ævi hans, sem og yfir hálfan hnöttinn.
Gegnum markvissa listræna stjórnun, sterka myndrænu og frábæra myndatöku tekst leikstjóranum að endurskapa Lundúnir sjöunda áratugarins með sannfærandi hætti, samhliða Íslandi og Japan nútímans. Lágstemmd tónlistin styður við frábæra frammistöðu leikaranna á áhrifaríkan og næman hátt og greiðir fyrir framvindu sögunnar, þar sem við kynnumst smám saman mætti æskuástarinnar og því hvernig sársauki fortíðar getur ógnað hinu viðkvæma upphafsstigi nýkviknaðs ástarsambands.
Þó að hér sé sögð harmræn saga af mannlegri reynslu tekst Baltasar að skilja þannig við áhorfendur að þeir finna til vonar og eru – líkt og titillinn gefur vísbendingu um – snortnir.
Kvikmyndirnar sem tilnefndar eru verða kynntar á þriðjudagskvöld við opnun „New Nordic Films“ á norsku kvikmyndahátíðinni í Haugesundi í Noregi.
Tilnefningar til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2024 eru:
- Danmörk: Min arv bor i dig (The Son and the Moon) – Leikstjórar Roja
Pakari og Emilie Adelina Monies, handritshöfundar Roja Pakari og Denniz Göl
Bertelsen, framleiðandi Sara Stockmann fyrir Sonntag Pictures.
- Finnland: Kuolleet lehdet (Fallen Leaves) – Leikstjóri og handritshöfundur Aki Kaurismäki, framleiðendur Aki Kaurismäki, Misha Jaari og Mark Lwoff fyrir Sputnik Oy og Bufo.
- Grænland: Twice Colonized – Leikstjóri Lin Alluna, handritshöfundar Aaju Peter og Lin Alluna, framleiðandi Emile Hertling Péronard fyrir Ánorâk Film.
- Ísland: Snerting (Touch) – Leikstjóri Baltasar Kormáki, handritshöfundar Ólafur Jóhann Ólafsson og Baltasar Kormákur, framleiðendur Agnes Johansen og Baltasar Kormákur fyrir RVK Studios.
- Noregur: Sex – Leikstjóri og handritshöfundur Dag Johan Haugerud, framleiðendur Yngve Sæther og Hege Hauff Hvattum fyrir Motlys.
- Svíþjóð: Passage (Crossing) – Leikstjóri og handritshöfundur Levan Akin, framleiðandi Mathilde Dedye fyrir French Quarter Film.
Íslenskar kvikmyndir sem hlotið hafa Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs eru Dýrið í leikstjórn Valdimars Jóhannsonar, Hross í Oss og Kona fer í Stríð í leikstjórn Benedikts Erlingssonar og Fúsi í leikstjórn Dags Kára.
Tilkynnt verður um handhafa verðlaunanna 2024 þann 22. október næstkomandi í útsendingu á RÚV sem einnig verður sýnd á norðurlöndunum. Verðlaunagripurinn verður í kjölfarið afhentur á sérstakri verðlaunaathöfn á þingi Norðurlandaráðs í lok október, nánar tiltekið í síðustu viku október. Tilkynningin helst í hendur við önnur verðlaun Norðurlandaráðs fyrir bókmenntir, barna- og ungmennabókmenntir, tónlist og umhverfismál.