Um KMÍ
Á döfinni

30.5.2023

Soviet Barbara, Heimaleikurinn og Skuld verðlaunaðar á Skjaldborg

Skjaldborg – hátíð íslenskra heimildamynda var haldin á Patreksfirði í sextánda sinn um liðna hvítasunnuhelgi. Sautján íslenskar heimildamyndir voru frumsýndar og fimm verk í vinnslu voru kynnt.

Aðsókn á hátíðina var með mesta móti og var salurinn í Skjaldborgarbíói þéttsetinn af áhorfendum alla helgina. Samkvæmt hefðinni gengu gestir hátíðarinnar fylktu liði í skrúðgöngu frá Skjaldborgarbíói í Félagsheimili Patreksfjarðar að lokinni dagskrá í Skjaldborgarbíói.

Ljósmynd: Patrik Ontkovic

Verðlaunaafhending fór fram í félagsheimilinu og í kjölfarið tróðu Ívar Pétur og Hermigervill upp sem TWIN TWIN SITUATION og gestir dönsuðu inn í vestfirsku vornóttina.

Höfundar myndanna tóku við verðlaunum en tækjaleigan Kukl og eftirvinnslufyrirtækið Trickshot veita veglegt verðlaunafé til vinningshafa Einarsins og Ljóskastarans sem hvor um sig hlýtur inneign að verðmæti 500 þúsund krónur í tækjaleigu og 250 þúsund krónur í formi eftirvinnslu.

Dómnefnd Skjaldborgar 2023 var skipuð þeim Margréti Bjarnadóttur, danshöfundi og myndlistarkonu, Antoni Mána Svanssyni, kvikmyndaframleiðanda og Jóni Bjarka Magnússyni, mannfræðingi og heimildamyndahöfundi.

Ljóskastarinn

Dómnefndarverðlaun Skjaldborgar 2023, Ljóskastarann, hlaut Soviet Barbara, sagan um Ragnar Kjartansson í Moskvu eftir Gauk Úlfarsson. Verðlaunagripurinn er hannaður af Kristínu Maríu, og er steyptur úr gifsi.

Ljósmynd: Patrik Ontkovic

Í umsögn dómnefndar segir: „Dómnefndarverðlaun Skjaldborgar 2023 hlýtur mynd sem vakti heitar umræður á meðal dómnefndarmeðlima. Myndin er í grunninn nærmynd af einum fremsta listamanni þjóðarinnar á þeim tíma sem hann tekst á við gríðarstórt verkefni í Moskvu og fjölþættar áskoranir sem því fylgir, en skarast að lokum við heimssögulegan atburð sem setur listina og lífið í nýtt samhengi. Hún er í senn hrífandi og óþægileg – einstaklega athyglisverð og marglaga frásögn sem vekur upp stórar og flóknar spurningar.“

Um Soviet Barbara, söguna um Ragnar Kjartansson í Moskvu:

Myndlistarmaðurinn Ragnar Kjartansson opnar nýtt listasafn í hjarta Moskvu með rússneskri endurgerð af sápuóperunni Santa Barbara. Hann tekst á við pólitískan þrýsting, þunga sögunnar og ritskoðun skömmu áður en innrás skellur á Úkraínu.

Leikstjóri: Gaukur Úlfarsson
Framleiðendur: Gaukur Úlfarsson, Guðrún Olsen, Guðni Tómasson, Freyr Árnason & Kristín Ólafsdóttir
Stjórn kvikmyndatöku: Hákon Sverrisson
Tónlist: Davíð Berndsen
Klipping: Elísabet Ronaldsdóttir og Sigurður Kristinn Ómarsson
Framleiðslufyrirtæki: Ofvitinn

Einarinn

Áhorfendaverðlaun Skjaldborgar 2023, Einarinn, hlaut Heimaleikurinn eftir Smára Gunnarsson og Loga Sigursveinsson. Áhorfendakosning ræður þeim verðlaunum og verðlaunagripurinn er sérhannaður og smíðaður hvert ár af Einari Vatneyr Skarphéðinssyni, smiði á Patreksfirði, sem gripurinn er skírður í höfuðið á.

Ljósmynd: Patrik Ontkovic

Um Heimaleikinn:

Heimaleikurinn er gamansöm íþróttaheimildamynd um tilraun manns til að uppfylla draum föður síns; að safna í lið heimamanna til að spila langþráðan vígsluleik á fótboltavelli sem faðirinn lét byggja á Hellissandi 25 árum áður.

Leikstjóri: Smári Gunnarsson & Logi Sigursveinsson
Framleiðendur: Stephanie Thorpe, Elfar Aðalsteins, Heather Millard, Freyja Kristinsdóttir
Klipping: Smári Gunnarsson & Logi Sigursveinsson
Tónskáld: Kristján Sturla Bjarnason
Stjórn kvikmyndatöku: Logi Sigursveinsson
Hljóðhönnun: Brynjar Ingi Unnsteinsson

Hvatningarverðlaun

Hvatningarverðlaun Skjaldborgar 2023 hlaut Skuld eftir Rut Sigurðardóttur.

Í umsögn dómnefndar segir: „Hvatningarverðlaun Skjaldborgar 2023 hlýtur mynd sem dómnefndarmeðlimum þótti sérstaklega hlý, fyndin og falleg. Mynd sem opnar glugga inn í heim smábátaeigenda og handfæraveiða á persónulegan og heillandi máta. Höfundur beitir sterkri sjónrænni nálgun og fer einstaklega vel með hlutverk sitt allt í kring um myndavélina svo úr verður allsherjar óður til ástarinnar, framtaksseminnar – og strandveiða.“

Um Skuld:

Ungt par hættir skuldastöðu sinni og sambandi er þau feta í fótspor forfeðra sinna og gera út trilluna Skuld á handfæraveiðum. Framtíð þessarar elstu atvinnugreinar þjóðarinnar er óviss og virðist sem einungis einstaka sérvitringur stundi þetta basl, eða hvað?

Leikstjóri: Rut Sigurðardóttir
Framleiðandi: Rut Sigurðardóttir
Tónskáld: Kristján Torfi
Klippari: Einar Snorri
Stjórn kvikmyndatöku: Rut Sigurðardóttir