Stærðarinnar íslenskur kvikmyndafókus í Póllandi
Síðastliðið haust fór af stað samvinnuverkefni milli Póllands og Íslands sem ól af sér sýningarröðina Ultima Thule – At the End of the World. Sýningarröðin hóf göngu sína í nóvember síðastliðnum, þegar 15 pólskar kvikmyndir voru sýndar í Bíó Paradís.
Í febrúar og mars á þessu ári verða gífurlegur fjöldi íslenskra kvikmynda sýndar í pólsku borgunum Gdansk, Poznan og Varsjá. Sýningar eru þegar hafnar í Gdansk, þar sem sýningarröðin hófst 12. febrúar og stendur til 24. febrúar. Alls verða 27 íslenskar myndir sýndar af þessu tilefni.
Eftirtaldar íslenskar myndir verða sýndar í borgunum þremur:
Ísland í lifandi myndum (1925) – leikstjóri: Loftur Guðmundsson,
Björgunarafrekið við Látrabjarg (1949) – leikstjóri: Óskar Gíslason,
Síðasti bærinn í dalnum (1950) - leikstjóri: Ævar Kvaran,
Morðsaga (1977) – leikstjóri: Reynir Oddsson,
Kristnihald undir jökli (1989) – leikstjóri: Guðný Halldórsdóttir,
Börn náttúrunnar (1991) – leikstjóri: Friðrik Þór Friðriksson,
Ingaló (1992) – leikstjóri: Ásdís Thoroddsen,
Sódóma Reykjavík (1992) – leikstjóri: Óskar Jónasson,
Fíaskó (2000) – leikstjóri: Ragnar Bragason,
Íslenski draumurinn (2000) – leikstjóri: Róbert Douglas,
Mávahlátur (2001) – leikstjóri: Ágúst Guðmundsson,
Maður eins og ég (2002) – leikstjóri: Róbert Douglas,
Stormviðri (2003) – leikstjóri: Sólveig Anspach,
Kaldaljós (2004) – leikstjóri: Hilmar Oddsson,
Börn (2006) – leikstjóri: Ragnar Bragason,
Duggholufólkið (2007) – leikstjóri: Ari Kristinsson,
Foreldrar (2007) – leikstjóri: Ragnar Bragason,
Veðramót (2007) – leikstjóri: Guðný Halldórsdóttir,
Skrapp út (2008) – leikstjóri: Sólveig Anspach,
Brim (2010) – leikstjóri: Árni Ólafur Ásgeirsson,
Á annan veg (2011) – leikstjóri: Hafsteinn Gunnar Sigurðsson,
Borgríki (2011) – leikstjóri: Ólafur de Fleur Jóhannesson,
Eldfjall (2011) – leikstjóri: Rúnar Rúnarsson,
Málmhaus (2013) – leikstjóri: Ragnar Bragason,
XL (2013) – leikstjóri: Marteinn Þórsson
Borgríki 2 – Blóð hraustra manna (2014) – leikstjóri: Ólafur de Fleur Jóhannesson,
Vonarstræti (2014) – leikstjóri: Baldvin Z.
Sýningarröðin heldur áfram í Poznan frá 25. febrúar til 3. mars og mun að lokum fara fram í Varsjá frá 9. – 20. mars.
Mikill fjöldi Íslendinga verða viðstaddir sýningarröðina. Ragnar Bragason verður með leikstjóraspjall eftir sýningu á Börnum og Foreldrum í bæði Gdansk og Varsjá. Rúnar Rúnarsson verður með leikstjóraspjall í Poznan eftir sýningu á Eldfjalli og mun einnig halda „masterclass“, bæði í Poznan og Varsjá. Árni Ólafur Ásgeirsson verður svo með leikstjóraspjall eftir sýningu á Brim í Varsjá og mun einnig halda masterclass í Varsjá.
Þá mun tónlistarkonan Sóley halda tónleika ásamt pólskum tónlistarmönnum í öllum borgunum þremur.
Dagskránna fyrir Gdansk má nálgast hér.
Dagskránna fyrir Poznan má nálgast hér.
Dagskránna fyrir Varsjá má nálgast hér.
Nánari upplýsingar um sýningarröðina er að finna á heimasíðu Ultima Thule.
Upplýsingar um sýningarnar á pólsku kvikmyndunum í nóvember síðastliðnum er að finna áheimasíðu Bíó Paradísar.