Um KMÍ
Á döfinni

6.11.2024

Stór íslenskur kvikmyndafókus í Les Arcs

Tuttugu íslensk kvikmyndaverk verða sýnd á íslenskum kvikmynda- og tónlistarfókus kvikmyndahátíðarinnar í Les Arcs í Frakklandi, 14.-21. desember 2024.

Tvær nýjar íslenskar kvikmyndir verða sýndar í aðaldagskrá hátíðarinnar. Kvikmyndin Ljósbrot, í leikstjórn Rúnars Rúnarssonar, keppir þar um verðlaun og Snerting, í leikstjórn Baltasars Kormáks, verður sýnd í hluta hátíðarinnar sem nefnist Oscars on Skis.

Tengsl hátíðarinnar við íslenska kvikmyndagerð hafa löngum verið sterk. Fjöldi íslenskra kvikmynda hafa verið sýndar á hátíðinni í gegnum tíðina og hlotið þar verðlaun, auk þess sem mörg íslensk verkefni í vinnslu hafa tekið þátt í bransahluta hennar sem nefnist Industry Village.

Eldri í bland við nýrri kvikmyndaverk verða hluti af fókusnum, 9 leiknar myndir í fullri lengd og 9 stuttmyndir. 

Leiknar myndir í fullri lengd:

A Song Called Hate (2021)
Anna Hildur Hildibrandsdóttir

Á ferð með mömmu (2022)
Hilmar Oddsson

Dagurinn sem Ísland stöðvaðist (2024)
Pamela Hogan

Haut les coeurs! (1999)
Sólveig Anspach

Hjartasteinn (2016)
Guðmundur Arnar Guðmundsson

Hrútar (2015)
Grímur Hákonarson

Kona fer í stríð (2018)
Benedikt Erlingsson

Svar við bréfi Helgu (2022)
Ása Helga Hjörleifsdóttir

Vetrarbræður (2017)
Hlynur Pálmason

Stuttmyndir:

Allir hundar deyja (2020)
Ninna Pálmadóttir

Ég (2018)
Hallfríður Tryggvadóttir, Vala Ómarsdóttir

HEX (2022)
Katrín Helga Andrésdóttir

Hreiður (2022)
Hlynur Pálmason

Hvalfjörður (2013)
Guðmundur Arnar Guðmundsson

Já-fólkið (2020)
Gísli Darri Halldórsson

O (hringur) (2024)
Rúnar Rúnarsson

Síðasti dansinn (2020)
Ása Helga Hjörleifsdóttir

Toutes les deux (2022)
Clara Lemaire Anspach

Ljósmynd: Claire Nicol. Les Arcs Film Festival.