Um KMÍ
Á döfinni

20.11.2024

Stuttmynd Hjördísar Jóhannsdóttur hlýtur sérstaka viðurkenningu í Tallinn

Stuttmyndin Brúðurin, eftir Hjördísi Jóhannsdóttur, hlaut sérstaka viðurkenningu á PÖFF– Tallinn Black Nights kvikmyndahátíðinni í flokknum New Talents Live Action um nýliðna helgi.

Í umsögn dómnefndar segir að stuttmyndinni sé meistaralega leikstýrt og hún hrífi áhorfendur með sér. „Gimsteinn sem skarar fram úr með nákvæmni og listfengi.“

Brúðurin var sýnd á meðal 22 annarra stuttmynda í sama flokki. Vinningsmyndin var stuttmyndin We Beg to Differ (Írland/ Bretland) eftir Ruairi Bradley. Á meðal vinningsmynda í öðrum flokkum voru The Weight of Light (Eistland) eftir Anna Hints og Panadrilo (Panama) eftir Marcela Heilbron.