Á döfinni
Stuttmynd Rúnars Rúnarssonar verðlaunuð á kvikmyndahátíðinni í Tampere
Stuttmyndin O (Hringur), eftir Rúnar Rúnarsson, hlýtur áhorfendaverðlaun alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Tampere í Finnlandi, sem er stærsta stuttmyndahátíðin á Norðurlöndum.
Verðlaunin voru afhent laugardaginn 8. mars. Þetta eru fjórðu alþjóðlegu verðlaun myndarinnar og er hún í forvali Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna 2025.
Ingvar E. Sigurðsson fer með aðalhlutverkið. Framleiðandi myndarinnar er Heather Millard.
O (Hringur) er ljóðræn frásögn af manni sem vill standa sig en hans helsta hindrun er hann sjálfur. Myndin var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í haust og hefur verið á ferðalagi um heiminn síðan.