Á döfinni
Stuttmyndin Sætur verðlaunuð í Danmörku
Stuttmyndin Sætur (Felt Cute), eftir Önnu Karín Lárusdóttur, var valin besta norræna stuttmyndin á Buster, stærstu kvikmyndahátíð sem helguð er börnum- og ungmennum í Danmörku.
Myndin segir frá hinum Hinn 11 ára Breka sem prófar sig áfram með farða systur sinnar og föt þegar hann er einn heima.
Dómnefndin heillaðist af uppbyggilegri og fallegri sögu, sem sé römmuð inn af fallegri sviðsmynd. „Sá þáttur myndarinnar sem snýr að tjáningu og könnun á kyngervi er einstaklega vel fléttaður við sögu af systkinaerjum og þeim áskorunum sem felast í því að þroskast og vaxa upp.“