Um KMÍ
Á döfinni

23.8.2021

Stuttmyndin Selshamurinn eftir Uglu Hauksdóttur hlýtur tvenn alþjóðleg verðlaun

Nýverið hlaut stuttmynd Uglu Hauksdóttur, Selshamurinn, tvenn alþjóðleg verðlaun á kvikmyndahátíðum í Portúgal og á Ítalíu. Á Leiria kvikmyndahátíðinni í Portúgal hlaut Selshamurinn verðlaunin „Best International Fiction“ og á kvikmyndahátíðinni Dieciminuti á Ítalíu hlaut myndin verðlaunin „Best Original Soundtrack“, en Herdís Stefánsdóttir samdi tónlist.

Síðan myndin var heimsfrumsýnd á Huesca alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni á Spáni árið 2020 hefur hún verið valin inn á fjölda hátíða út um allan heim, meðal annars Torino kvikmyndahátíðina á Ítalíu, alþjóðlegu kvikmyndahátíðina Diorama á Indlandi, og Norrænu kvikmyndadagana í Lübeck, Þýskalandi, auk þess að vera tilnefnd sem stuttmynd ársins á Edduverðlaununum 2021.

Selshamurinn trailer

Selshamurinn er skrifuð og leikstýrð af Uglu Hauksdóttur og framleidd af Antoni Mána Svanssyni fyrir Join Motion Pictures. Myndin fjallar um hina fimm ára Sól sem býr með föður sínum í afskekktu húsi við hafið. Ímyndunarafl hennar tekst á flug í tómarúmi einmanalegra daga á meðan faðir hennar tekst á við tónsmíðar. Þegar Sól skynjar trega föður síns, sem er henni óskiljanlegur, finnur hún hugarró í gamalli íslenskri þjóðsögu. Með aðalhlutverk fara Björn Thors, Bríet Sóley Valgeirsdóttir og Sigríður Soffía Níelsdóttir.