Um KMÍ
Á döfinni

7.10.2024

Super Happy Forever hlýtur Gullna lundann á RIFF

Japanska kvikmyndinni Super Happy Forever (Eilíf hamingja), í leikstjórn Kohei Igarashi, hlaut Gullna lundann, aðalverðlaun RIFF, alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík. Verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í Háskólabíói á laugardag. Þetta er í 21. sinn sem RIFF fer fram og í  tilkynningu segir að metaðsókn hafi verið á hátíðina í ár.

Í umsögn dómnefndar um myndina segir: „[Super Happy Forever] tekst á frumlegan hátt á við sorg, og teflir fram persónum sem er var sönn ánægja að kynnast. Kvikmyndin dáleiddi okkur á ýmsum plönum, frásögnin sem leikur sér að tímanleika, fínstillt sögusviðið.” Í dómnefnd sátu Ava Cahen, Elad Samorzik og Ingvar E. Sigurðsson

Super Happy Forever, Kohei Igarashi.

Sérstaka viðurkenningu hlaut Helga Guren aðalleikona kvikmyndarinnar Elskling (Elskuleg), í leikstjórn Lilju Ingólfsdóttur. Frammistaða hennar hreyfði sérstaklega við dómnefndinni. „Hún túlkar fullkomlega hlutverk konu sem tvístrast úr ástarsorg, og lærir svo að komast í samband við sjálfa sig. Við óskum Helga Guren til hamingju með hlutverk sitt í Elskuleg.“

Önnur framtíð

Norska heimildamyndin A New Kind of Wilderness (Breyttur veruleiki) eftir Silje Evensmo Jacobsen vann verðlaun í flokkinum Annarri framtíð, þar sem myndir sem fjalla um aðkallandi málefni líðandi stundar eru í kastljósinu.

„Áhrifamikil heimildarmynd um fjölskyldu sem þarf að takast á við blákaldan veruleika þegar framtíðin reynist önnur en hún átti að vænta. Leikstjóri miðlar erindi myndarinnar af fegurð og andagift,” segir í umsögn dómnefndar um myndina. Í dómnefnd sátu Andri Snær Magnason, Tine Klint og Rakel Garðarsdóttir.

Íslenskar stuttmyndir

Brúðurin eftir Hjördísi Jóhannsdóttur var valin besta íslenska stuttmyndin.

„Stuttmyndin Brúðurin er heildstætt verk sem hreyfði sérstaklega við dómnefndinni, ekki síst vegna frammistöðu leikarana, og má þar sérstaklega nefna aðalleikkonuna. Leikstjóranum tekst með eindæmum að skapa sannfærandi og þrívíðan heim, með sterkri sögufléttu og tilfinningadýpt sem er sérstaklega tilkomumikil í svo stuttri mynd,“ segir í umsögn dómnefndar. Í dómnefnd sátu Sarah Gyllenstierna, Bergur Árnason og Katla Njálsdóttir.

Nikulás Tumi Hlynsson fékk þar að auki sérstaka viðurkenningu í flokkinum fyrir stutmyndina Blái Kallinn. „Hér er kominn kvikmyndagerðarmaður sem má vænta mikils af,” segir dómnefnd. „Með sérstakri gaumgæfni og tærri sýn hélt hann dómnefndinni á tánum gjörvalla myndina.“

Verðlaun fyrir bestu stuttmynd í nemendaflokki hlaut Alfreð Hrafn Magnússon fyrir myndina Svefngengill. „Örugg tök þessa frumlega leikstjóra á bæði tóni og myndmáli þótti dómnefndinni tilkomumikil. Tvíræðni og tilraunakennd nálgun myndarinnar er vellukkuð og heldur áhorfendum við efnið frá upphafi til enda,“ segir í umsögn dómnefndar.

Sérstaka viðurkenningu í nemendaflokki hlaut Salvör Bergmann fyrir mynd sína Leik lokið. „Þessi sérstaklega efnilegi leikstjóri sýnir fram á sterka myndræna sýn og næmt skyn fyrir blæbrigðum, bæði í myndinni Leik lokið, sem og öðrum verkum leikstjórans á hátíðinni, sem heillaði dómnefndina.“

Alþjóðlegar stuttmyndir

Verðlaun fyrir bestu alþjóðlegu stuttmyndina hlutu Caroline Poggi og Jonathan Vinel fyrir myndina The Exploding Girl (Springandi stelpan).

„Springandi stelpan fangar óreiðukenndan kjarna heimsins í dag, þar sem reiði og óréttlæti liggja eins og mara yfir lífi okkar,“ segir í umsögn dómnefndar um myndina. „Áhorfandinn er lostinn viðstöðulausum höggum og sprengingum, sem neyðir hann til að horfast í augu við yfirþyrmandi hrylling samtímans. Með djarfri fagurfræði Z-kynslóðarinnar, sýnir myndin á fiman hátt fram á mýktina sem leynist innan í óreiðunni; þegar heimurinn er svona hryllilegur, þá hlýtur þú að springa.“ Í dómnefnd sátu Lasse Linder, Loran Batti og Erlingur Óttar Thoroddsen.

Dómnefnd unga fólksins

Dómnefnd unga fólksins verðlaunaði sænsku myndina G: 21 Scenes from Gottsunda (G: 21 Sena frá Gottsunda) í leikstjórn Loran Batti sem bestu myndina.

„[Myndin] stendur upp úr í sinni óhefluðu en þó umfram annað mannlegu túlkun á samfélagi sem er hulið mörgum,“ segir í umsögn dómnefndar. „G – 21 sena frá Gottsunda er innhverf og ljóðræn hugleiðing um sjálfsmynd og bræðralag, þar sem tryggð leikstjórans við rætur sínar birtist í einstöku portretti af hverfinu sem ól hann upp, og fyrir það á hann mikið lof skilið.“ Í dómnefnd sátu Harpa Hjartardóttir, Artúr Siuzev Guðnason og Arína Vala Þórðardóttir.

Gullna eggið

Sigurvegari Talent Lab smiðjunnar og handhafi Gullna eggsins er A Good Day Will Come (Góðir dagar) í leikstjórn Amir Zargara.

„A Good Day Will Come er áleitin spegill á heiminn okkar í dag og grandskoðar muninn á því að láta í sér heyra og því að þegja í von um öryggi,“ segir í umsögn dómnefndar. „Spurningin sem myndin leggur í hendur áhorfenda er: getum við brotist undan kynslóðamynstrum áður en þau mynstur brjóta okkur á bak aftur? Haganlega smíðuð frásögnin, útsjónarsamar ákvarðanir og fagmannlegt handverk koma saman til að skapa sannfærandi og trúverðugan söguheim.“ Í dómnefnd sátu Bjarni Felix Bjarnason, Hrafnkell Stefánsson og Silla Berg.