Um KMÍ
Á döfinni

12.10.2018

Svanurinn vann dreifingarverðlaun á kvikmyndahátíðinni í Napólí

Svanurinn, kvikmynd Ásu Helgu Hjörleifsdóttur, vann til dreifingarverðlauna á kvikmyndahátíðinni í Napólí. Verðlaunin tryggja myndinni dreifingu um alla Ítalíu. Þetta eru fimmtu alþjóðlegu verðlaunin sem myndin hlýtur.

Dómnefnd hafði eftirfarandi að segja um veitingu verðlaunanna:

"Með smekklegri og fágaðri notkun á kvikmyndamiðlinum tekst hér að tjá bæði mjög flóknar tilfinningar og hugmyndir, og miðla sjónarhorni aðalsöguhetjunnar ungu. Samverkanin af ólíkum frásagnarsviðum og túlkun leikaranna með einstakri birtu, litum og landslagi Íslands verður allt að því súrrealísk. Í Svaninum hlýðum við á eintal sálarinnar, það sem við höfum aldrei skrifað niður heldur geymt innra með okkur af afbrýðisemi og nísku. Ásu Helgu Hjörleifsdóttur hefur tekist að fjalla um og leikstýra tilteknu æviskeiði svo það snerti strengi og veki hluttekningu áhorfandans. Svanurinn endurkastar vægðarlausu en móðurlegu kalli náttúrunnar í manninum með sögu af tilvistarlegum þroska á einmanalegu lífsferðalagi. Sjónrænar frásagnir af Íslandi verða að rómantísku samtalsljóði sem auðvelt er að týna sér í. Sem fullorðið fólk getum við ekki annað en tekið hugdirfsku Sólar til hliðsjónar þegar út í hversdagsleikann er komið."

Svanurinn var heimsfrumsýnd á hinni virtu alþjóðlegu kvikmyndahátíð í Toronto í september 2017. Stuttu síðar var hún valin besta myndin á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Kaíró í Egyptalandi, einni af fáum „A“ kvikmyndahátíðum heimsins. Undir lok árs 2017 var Ása Helga Hjörleifsdóttir valin besti leikstjórinn á hinni virtu alþjóðlegu kvikmyndahátíð í Kolkata á Indlandi. Á þessu ári hefur myndin unnið til sérstakra dómnefndarverðlauna á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Santa Barbara og hlaut einnig sérstök dómnefndarverðlaun á Skip City kvikmyndahátíðinni í Japan. Svanurinn hefur auk þess tekið þátt á fjölda annarra virtra kvikmyndahátíða, þar á meðal Tallinn Black Nights kvikmyndahátíðinni í Eistlandi, sem einnig flokkast sem „A“ hátíð.