Um KMÍ
Á döfinni

28.8.2019

Svar við bréfi Helgu valin á Ontario Creates International Financing Forum í Toronto

Birgitta Björnsdóttir og Skúli Fr. Malmquist, framleiðendur kvikmyndarinnar Svar við bréfi Helgu eftir Ásu Helgu Hjörleifsdóttur, munu taka þátt í Ontario Creates International Financing Forum (IFF), sem fer fram dagana 8. - 9. september samhliða alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto.  

IFF gefur framleiðendum tækifæri til að sækja fundi, panela og styrkja tengslanet við fagaðila. Þetta árið voru 20 kanadísk og 15 alþjóðleg teymi valin til þátttöku. 

Um Svar við bréfi Helgu:

Aldraður bóndi skrifar bréf til ástkonunnar sem honum bauðst að fylgja forðum tíð. Gerði hann rétt að taka skyldur sínar við sveit og eiginkonu fram yfir ástina, eða sveik hann þannig sitt eigið hjarta?

Nánari upplýsingar um Ontario Creates má finna hér.