Um KMÍ
Á döfinni

28.9.2023

Svar við bréfi Helgu vinnur fern verðlaun í Montreal

Kvikmyndin Svar við bréfi Helgu, í leikstjórn Ásu Helgu Hjörleifsdóttur, vann til fernra verðlauna á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Montreal. Hátíðin er nýstofnuð og fór fram í byrjun september. Svar við bréfi Helgu hlaut þar verðlaun sem besta myndin og fyrir bestu kvikmyndatöku, klippingu og tónlist. 

Myndin var frumsýnd hér á landi í september 2022. Hún hefur síðan verið sýnd á fjölda hátíða víða um heim, þar á meðal Tallinn Black Nights í Eistlandi, á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Santa Barbara í Bandaríkjunum og á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Transylvaníu í Rúmeníu.

https://www.youtube.com/watch?v=MI4Mj7ii884

Svar við bréfi Helgu gerist í afskekktum firði á 5. áratug síðustu aldar og segir frá því þegar ástir takast með ungum bónda og konunnar á næsta bæ. Þau hefja ástríðufullt, forboðið ástarsamband, og brátt fara tilfinningarnar að flæða jafn hömlulaust og hafið sem umkringir þau. Myndin byggist á samnefndri skáldsögu Bergsveins Birgissonar, sem sló í gegn árið 2010.