Um KMÍ
Á döfinni

8.11.2021

Þorpið í bakgarðinum vinnur til verðlauna í Vín

Kvikmynd Marteins Þórssonar, Þorpið í bakgarðinum, vann til verðlauna fyrir bestu kvikmyndina og besta handritið á Vienna Independent Film Festival sem fór fram dagana 1. - 4. nóvember.

Þorpið í bakgarðinum trailer

Marteinn Þórsson leikstýði kvikmyndinni og Guðmundur Óskarsson skrifaði handritið. Þeir eru jafnframt framleiðendur myndarinnar. Með helstu hlutverk fara Laufey Elíasdóttir, Tim Plester, Eygló Hilmarsdóttir, Sóley Elíasdóttir, Sara Dögg Ásgeirsdóttir og Helgi Svavar Helgason.

Þorpið í bakgarðinum fjallar um Brynju sem lýkur dvöl á heilsuhæli í litlum bæ en treystir sér ekki til að snúa aftur til daglegs lífs í borginni. Hún kemur sér fyrir á gistiheimili þar sem hún kynnist Mark, ferðamanni sem á sömuleiðis erfitt með að yfirgefa bæinn. Þau bindast vináttuböndum, læsa örmum og finna í sameiningu færa leið um þrautirnar sem lífið hefur lagt fyrir þau.