Þröstur Leó heiðursgestur PIFF
Þröstur Leó Gunnarsson verður heiðursgestur kvikmyndahátíðarinnar Pigeon International Film Festival í ár, sem fer fram á Ísafirði 12.-15. október.
Þröstur Leó sem er frá Bíldudal er einn af þekktustu leikurum Íslands en hann hefur starfað jöfnum höndum í kvikmyndum og leikhúsi, bæði í Borgarleikhúsinu og Þjóðleikhúsinu. Hann hefur leikið í á sjöunda tug sjónvarps- og kvikmyndaverkefna og leikstýrt fjórum. Hann leikur í vestfirsku myndinni Leitin að Auði – eða The Search for Auður – eftir Lýð Árnason sem sýnd verður á PIFF í ár en hún var tekin að stærstum hluta upp á Vestfjörðum.
Þröstur Leó hefur fengið fjölmörg verðlaun fyrir verk sín, meðal annars Grímuverðlaunin fyrir hlutverk sín í Killer Joe, Ökutímum og Koddamanninum, Edduverðlaunin fyrir Nóa albínóa og Brúðgumann, og Stefaníustjakann fyrir störf sín að leiklist árið 2009. Auk þess sem hann hefur hlotið mikið lof fyrir hlutverk sitt í í svörtu kómedíunni Á ferð með mömmu og var valinn besti leikari í aðalhlutverki fyrir það hlutverk sitt á ítölsku kvikmyndahátíðinni BIF&ST í vor. Myndin er tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs í ár.
Þröstur Leó situr fyrir svörum og spjallar um feril sinn á sérstökum viðburði á Dokkunni föstudaginn 13. október. Frítt er á viðburðin, líkt og alla aðra viðburði á vegum hátíðarinnar.
PIFF-hátíðin stendur yfir dagana 12. – 15. október. Nánari upplýsingar á facebook-síðu PIFF .