Um KMÍ
Á döfinni

23.5.2025

Íslenski fjárhundurinn Panda hreppir aðalverðlaun í Cannes

Tíkin Panda, sem fer með hlutverk í kvikmyndinni Ástin sem eftir er í leikstjórn Hlyns Pálmasonar, hlaut aðalverðlaun Palm Dog Awards sem veitt eru árlega á kvikmyndahátíðinni í Cannes.

Panda er íslenskur fjárhundur og hitti frammistaða hennar dómnefnd verðlaunanna í hjartastað. „Panda er svo stór hluti af fjölskyldunni og sífellt nálæg henni: í stofunni, í eldhúsinu, í bílnum, á hlaupum í garðinum. Hún er ávallt til staðar, sem endurspeglar veruleikann svo vel,“ segir í umsögn hennar.

Eigandi Pöndu er Hlynur Pálmason. Börn hans fara einnig með burðarhlutverk í Ástinni sem eftir er og því um að ræða sannkallaða fjölskyldumynd. 

Ástin sem eftir er var heimsfrumsýnd í aðaldagskrá kvikmyndarinnar í Cannes. Myndin fangar ár í lífi fjölskyldu þar sem foreldrarnir stíga fyrstu skrefin í átt að skilnaði. Á fjórum árstíðum fylgjumst við með hversdagslífi fjölskyldumeðlima í gegnum óvænt, fyndin og hjartnæm augnablik sem endurspegla hið breytta samband þeirra.

Íslenski hundurinn Jökull hlaut sérstök dómnefndarverðlaun á Palm Dog Awards 2022 fyrir hlutverk sitt í kvikmynd Hlyns, Volaða land. Nafna Pöndu, sem fór með hlutverk í kvikmynd Valdimars Jóhannssonar, Dýrinu, hlaut þar einnig verðlaun 2021.