Um KMÍ
Á döfinni

3.3.2023

Tilnefningar til Eddunnar 2023

Tilnefningar til Eddunnar 2023 hafa verið gerðar opinberar. Verðlaunin hafa verið veitt árlega af Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni síðan árið 1999. Þetta ár markar ákveðin þáttaskil því þetta verður í síðasta sinn sem verðlaunin verða veitt í núverandi mynd þar sem sjónvarp og kvikmyndir heyra til sömu verðlauna.

Innsend verk í ár eru fjölmörg, en þegar innsendingarfresti lauk þann 24. janúar sl. höfðu framleiðendur sent inn alls 165 verk. Að auki voru 332 innsendingar til fagverðlauna Eddunnar. Gjaldgeng voru sjónvarps- og kvikmyndaverk sem voru sýnd opinberlega á tímabilinu 1. janúar 2022 til 31. desember 2022.

Af innsendum verkum eru sjónvarpsverk alls 117 talsins og kvikmyndir 10, heimildamyndir eru 9 og 22 verk flokkast undir barna- og unglingaefni.

Það var í höndum ellefu valnefnda að fara yfir öll innsend verk og tilnefna í samtals 27 verðlaunaflokkum. Endanlegt val er svo í höndum Akademíunnar sem tilkynnt verður á hátíðinni sem haldin verður í Háskólabíói 19. mars. Hátíðin verður í beinni útsendingu á RÚV að venju.

Auk þeirra verðlauna sem veitt verða í þeim flokkum sem taldir eru upp hér fyrir neðan verða veitt sérstök heiðursverðlaun sem tilkynnt verða á hátíðinni, sem og verðlaun fyrir sjónvarpsefni ársins en val á því fer fram með sérstakri kosningu sem opin verður öllum á rúv.is. Tilnefningar eru sem hér segir:

BARNA- OG UNGLINGAEFNI ÁRSINS

Abbababb! 

Krakkaskaupið 

Miðjan

Ævintýri Tulipop

Randalín og Mundi: Dagar í desember

FRÉTTA- EÐA VIÐTALSEFNI ÁRSINS

Vigdís - forseti á friðarstóli 

Kompás

Krakkafréttir Kveikur

Um land allt

HEIMILDAMYND ÁRSINS

Velkominn Árni 

Út úr myrkrinu

Sundlaugasögur

ÍÞRÓTTAEFNI ÁRSINS

Jón Arnór

Úrslitakeppni í körfubolta / Körfuboltakvöld

Förum á EM

HM stofan/HM kvöld (Fótbolti karla) 

Alex From Iceland

KVIKMYND ÁRSINS

Svar við bréfi Helgu 

Sumarljós og svo kemur nóttin 

Against the Ice

Berdreymi 

Volaða Land

LEIKIÐ SJÓNVARPSEFNI ÁRSINS

Trom

Svörtu sandar

Randalín og Mundi: Dagar í desember 

Brúðkaupið mitt

Verbúðin

MANNLÍFSEFNI ÁRSINS

Æði 4

Leitin að upprunanum 

Börnin okkar 

Náttúran mín 

Hvunndagshetjur

MENNINGAREFNI ÁRSINS

Veislan Morð í norðri 

Skapalón

Evrópsku kvikmyndaverðlaunin 

Klassíkin okkar

SKEMMTIEFNI ÁRSINS

Stóra sviðið 

Krakkakviss 

Krakkaskaupið 

Áramótaskaup 2022

Hraðfréttir 10 ára

STUTTMYND ÁRSINS

Mitt draumaland 

Hávængja (Chrysalis)

Kílómetrar

Hreiður 

HEX

Flokkar fagverðlauna:

BRELLUR ÁRSINS

Magic Lab, Haymaker, Split fyrir Berdreymi 

Rob Tasker fyrir Abbababb!

Sigurgeir Arinbjarnarson fyrir Svörtu sanda

Guðjón Jónsson (VFX Supervisor) Monopix / ShortCut / MPC / Union VFX/ Filmgate fyrir Against the Ice

Davíð Jón Ögmundsson fyrir Verbúðina

BÚNINGAR ÁRSINS

Eugen Tamberg fyrir Svar við bréfi Helgu 

Helga Rós Hannam fyrir Berdreymi

Nina Grønlund fyrir Volaða Land 

Margrét Einarsdóttir fyrir Against the Ice

Margrét Einarsdóttir & Rebekka Jónsdóttir fyrir Verbúðina

GERVI ÁRSINS

Evalotte Oosterop fyrir Svar við bréfi Helgu 

Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Berdreymi 

Katrine Tersgov fyrir Volaða Land

Hafdís Kristín Lárusdóttir fyrir Abbababb! 

Kristín Júlla Kristjánsdóttir fyrir Verbúðina

HANDRIT ÁRSINS

Heimir Bjarnason fyrir Þrot

Bergsveinn Birgisson, Ottó G. Borg og Ása Helga Hjörleifsdóttir fyrir Svar við bréfi Helgu 

Guðmundur Arnar Guðmundsson fyrir Berdreymi

Hlynur Pálmason fyrir Volaða Land

Vala Þórsdóttir, Kolbrún Anna Björnsdóttir & Eva Sigurðardóttir fyrir Vitjanir

Mikael Torfason, Gísli Örn Garðarsson og Björn Hlynur Haraldsson fyrir Verbúðina

HLJÓÐ ÁRSINS

Gunnar Árnason fyrir Skjálfta

Tuomas Klaavo fyrir Svar við bréfi Helgu

Yanna Soentjens, Matthias Hillegeer fyrir Sumarljós og svo kemur nóttin 

Björn Viktorsson & Kristian Eidnes Andersen fyrir Volaða Land

Kjartan Kjartansson fyrir Against the Ice

KLIPPING ÁRSINS

Antti Reikko fyrir Svar við bréfi Helgu

Andri Steinn Guðjónsson & Anders Skov fyrir Berdreymi 

Julius Krebs Damsbo fyrir Volaða Land

Úlfur Teitur Traustason fyrir Svörtu sanda 

Kristján Loðmfjörð fyrir Verbúðina

KVIKMYNDATAKA ÁRSINS

Jasper Wolf fyrir Svar við bréfi Helgu 

Sturla Brandth Grøvlen fyrir Berdreymi 

Maria von Hausswolff fyrir Volaða Land

Jóhann Máni Jóhannsson fyrir Svörtu sanda 

Hrafn Garðarsson fyrir Verbúðina

LEIKARI ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI

Þorvaldur Davíð Kristjánsson fyrir Svar við bréfi Helgu 

Birgir Dagur Bjarkason fyrir Berdreymi

Viktor Benóný Benediktsson fyrir Berdreymi 

Ingvar E. Sigurðsson fyrir Volaða Land 

Gísli Örn Garðarsson fyrir Verbúðina

LEIKARI ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI

Björn Thors fyrir Svar við bréfi Helgu 

Blær Hinriksson fyrir Berdreymi 

Hilmar Guðjónsson fyrir Volaða Land

Guðjón Davíð Karlsson fyrir Verbúðina 

Ingvar E. Sigurðsson fyrir Verbúðina

LEIKKONA ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI

Hera Hilmarsdóttir fyrir Svar við bréfi Helgu

Sara Dögg Ásgeirsdóttir fyrir Sumarljós og svo kemur nóttin 

Aldís Amah Hamilton fyrir Svörtu sanda

Kría Burgess fyrir Randalín og Mundi: Dagar í desember 

Nína Dögg Filippusdóttir fyrir Verbúðina

LEIKKONA ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI

Aníta Briem fyrir Svar við bréfi Helgu

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir fyrir Svörtu sanda 

Katla Njálsdóttir fyrir Vitjanir

Kristín Þóra Haraldsdóttir fyrir Verbúðina 

Unnur Ösp Stefánsdóttir fyrir Verbúðina

LEIKMYND ÁRSINS

Heimir Sverrisson fyrir Sumarljós og svo kemur nóttin 

Systa Björnsdóttir fyrir Abbababb!

Gunnar Pálsson & Marta Luiza Macuga fyrir Svörtu sanda 

Atli Geir Grétarsson fyrir Against the Ice

Atli Geir Grétarsson & Ólafur Jónasson fyrir Verbúðina

LEIKSTJÓRI ÁRSINS

Heimir Bjarnason fyrir Þrot

Ása Helga Hjörleifsdóttir fyrir Svar við bréfi Helgu 

Guðmundur Arnar Guðmundsson fyrir Berdreymi

Hlynur Pálmason fyrir Volaða Land

Björn Hlynur Haraldsson, Gísli Örn Garðarsson & María Reyndal fyrir Verbúðina

SJÓNVARPSMANNESKJA ÁRSINS

Chanel Björk Sturludóttir 

Kristjana Arnarsdóttir 

Kristján Már Unnarsson 

Steinþór Hróar Steinþórsson 

Viktoría Hermannsdóttir

TÓNLIST ÁRSINS

Páll Ragnar Pálsson og Eðvarð Egilsson fyrir Skjálfta 

Gunnar Týnes fyrir Sumarljós og svo kemur nóttin 

Alex Zheng Hungtai fyrir Volaða Land

Ragnar Ólafsson fyrir Vitjanir

Herdís Stefánsdóttir & Kjartan Dagur Holm fyrir Verbúðina

UPPTÖKU- EÐA ÚTSENDINGASTJÓRI ÁRSINS

Sturla Skúlason fyrir Sögur verðlaunahátið 

Björgvin Harðarson fyrir Blindur bakstur

Þór Freysson fyrir Mugison og Cauda Collective - Haglél í 10 ár 

Salóme Þorkelsdóttir fyrir Söngvakeppnina 2022

Þór Freysson fyrir Sigurrós í Höllinni

SJÓNVARPSEFNI ÁRSINS - Almenningskosning

Brúðkaupið mitt 

Gulli byggir Landinn

Leitin að upprunanum 

Söngvakeppnin 2022 

Stóra sviðið 

Venjulegt fólk 

Verbúðin

Það er komin Helgi