Um KMÍ
Á döfinni

22.10.2025

Tilnefningar til Íslensku sjónvarpsverðlaunanna

Tilnefningar til Íslensku sjónvarpsverðlaunanna hafa nú litið dagsins ljós. Hin nýju sjónvarpsverðlaun verða veitt í fyrsta sinn í lok október. Verðlaunað er fyrir sjónvarpsefni sem frumsýnt var á sjónvarpsstöðvum miðlanna á árunum 2023 og 2024. Tilnefnt er í alls 23 flokkum, í mismunandi tegundum sjónvarpsefnis auk ýmissa faggreina þar undir. Það eru þrír stærstu ljósvakamiðlar landsins sem standa að verðlaununum: Sjónvarp Símans, Sýn og RÚV.

Á annað hundrað verkefna barst frá sjónvarpsstöðvunum og framleiðslufyrirtækjum í haust þegar auglýst var til innsendinga og voru innsendingar nærri 600 talsins. Þrjár dómnefndir voru skipaðar til þess að fara yfir efnið en þær skipa fólk sem hefur góða innsýn í geirann, haft ýmsan snertiflöt á sjónvarpi, sjónvarpsframleiðslu eða fjallað um í fjölmiðlum. Ekki hefur verið verðlaunað fyrir sjónvarp eftir að Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían tók þá ákvörðun að verðlauna eingöngu kvikmyndir á hinum árlegu Eddu-verðlaunum. Því er nú verðlaunað fyrir tvö ár í senn.

Íslensku sjónvarpsverðlaunin fyrir árin 2023 og 2024 verða veitt við hátíðlega athöfn í Gamla bíói fimmtudagskvöldið 30. október.

Í tilkynningu segir að verðlaunaathöfnin sé uppskerukvöld sjónvarpsgeirans og hún hvorki sýnd í sjónvarpi né streymi. Björg Magnúsdóttir og Logi Bergmann Eiðsson stýra veisluhöldunum og verður öllum verðlaunum gerð góð skil.

Heiðursverðlaun Íslensku sjónvarpsverðlaunanna afhent sama kvöld. Samhliða tilkynningu um tilnefningar fer fram netkosning á Vísi.is þar sem almenningi er gefinn kostur á að kjósa um besta sjónvarpsefnið á árunum tveimur.

TILNEFNINGAR TIL ÍSLENSKU SJÓNVARPSVERÐLAUNANNA FYRIR ÁRIÐ 2024

 

Leikkona ársins

Ebba Katrín Finnsdóttir - Húsó
Edda Björgvinsdóttir - Húsó
Ólafía Hrönn Jónsdóttir - Svörtu sandar II
Aldís Amah Hamilton - Svörtu sandar II
Vigdís Hrefna Pálsdóttir - Útilega

Leikari ársins

Pálmi Gestsson - Svörtu sandar II
Jörundur Ragnarsson - Útilega
Björn Hlynur Haraldsson - DIMMA (The Darkness)
Ólafur Darri Ólafsson - Ráðherrann 2
Hjálmar Örn Jóhannsson - Útilega

Leikstjóri ársins

Baldvin Z, Álfheiður Marta Kjartansdóttir, Erlendur Sveinsson - Svörtu sandar II
Hannes Þór Halldórsson, Allan Sigurðsson, Hannes Þór Arason - IceGuys 2
Lóa Pind Aldísardóttir - Hvar er best að búa?: 5. sería
Arnór Pálmi Arnarson - Húsó
Garðar Örn Arnarson - Grindavík

Sjónvarpsviðburður ársins

X24 Kosningavaka
Besta deildin 2024
Úrslitakeppnin í körfubolta 2024
Tónaflóð á Menningarnótt 2024
Bakgarðshlaupið - maí 2024

Útsendingarstjóri ársins

Stefán Snær Geirmundsson - Úrslitakeppnin í körfubolta 2024
Ragnar Santos - X24 Kosningavaka
Salóme Þorkelsdóttir - Víkingur leikur Goldberg-tilbrigðin
Ragnar Eyþórsson - Sögur - verðlaunahátíð barnanna 2024
Ragnar Eyþórsson - Vikan með Gísla Marteini

Leikmynd ársins

Svörtu sandar II - Gunnar Pálsson, Marta Luiza Macuga
Húsó - Sólrún Ósk Jónsdóttir
IceGuys 2 - Anika Laufey Baldursdóttir
DIMMA (The Darkness) - Guðni Rúnar Gunnarsson
Draumahöllin - Aron Martin Ásgerðarson

Brellur ársins

Svörtu sandar II - Sigurgeir Arinbjarnarson
DIMMA (The Darkness) - Pétur Karlsson
Stofan - EM karla í fótbolta - Tómas Ólason
Stundin okkar - Tómas Ólason, Arna Rún B. Gústafsdóttir, Jónmundur Gíslason
IceGuys 2 - Úlfur E. Arnalds

Íþróttaefni ársins

Stofan - EM karla í fótbolta
Ólympíukvöld
Grindavík
Íslandsmeistarar 2024
Stúkan 2024

Handrit ársins

Húsó - Arnór Pálmi Arnarson, Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir, Dóra Jóhannsdóttir (undir dulnefninu Hekla Hólm)
Ráðherrann 2 - Birkir Blær Ingólfsson, Jónas Margeir Ingólfsson
Svörtu sandar II - Aldís Amah Hamilton, Baldvin Z, Ragnar Jónsson, Elías Helgi Kofoed Hansen
DIMMA (The Darkness) - Óttar Norðfjörð, Sam Shore, Kacie Stetson, Hannah Marshall
Draumahöllin - Magnús Leifsson, Saga Garðarsdóttir, Steinþór Hróar Steinþórsson

Menningar- og mannlífsefni ársins

Æskuslóðir
Endurtekið
RAX augnablik 2024
Sveitarómantík
Klassíkin okkar: Á valdi tilfinninganna

Skemmtiefni ársins

Vikan með Gísla Marteini 2024
Kappsmál
Bannað að hlæja
Draumahöllin
IceGuys 2

Gervi ársins

Húsó - Salóme Ósk Jónsdóttir
Skvíz - Ragna Fossberg
Ráðherrann 2 - Hafdís Pálsdóttir
Dimma (The Darkness) - Guðbjörg Huldís
Draumahöllin - Ragna Fossberg

Búningar ársins

Húsó - Brynja Skjaldardóttir
Svörtu sandar II - Eva Vala Guðjónsdóttir
DIMMA (The Darkness) - Helga Stefánsdóttir
Ráðherrann 2 - Eva Lind Rútsdóttir
Stundin okkar: Tökum á loft - Helga Rún Pálsdóttir

Barna- og unglingaefni

Lubbi finnur málbein
Stundin okkar: Tökum á loft
Krakkaskaupið 2024
Sögur: verðlaunahátíð barnanna 2024

Sjónvarpsmanneskja ársins

Bragi Valdimar Skúlason - Kappsmál
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir - Þríburar
Viktoría Hermannsdóttir - Æskuslóðir
Halla Ólafsdóttir - Vegur að heiman
Ása Ninna Pétursdóttir - Sveitarómantík

Hljóð ársins

Húsó - Gunnar Árnason
Kvöldstund með Eyþóri Inga 2024 - Sigurður Ingvar Þorvaldsson
DIMMA (The Darkness) - Gunnar Árnason
Ráðherrann 2 - Gunnar Árnason
IceGuys 2 - Birgir Tryggvason

Klipping ársins

Húsó - Úlfur Teitur Traustason
Perlur Kvikmyndasafnsins - Ragnheiður Thorsteinsson
DIMMA (The Darkness) - Guðni Halldórsson, Guðlaugur Andri Eyþórsson, Andri Steinn Guðjónsson
Svörtu sandar II - Úlfur Teitur Traustason
IceGuys 2 - Guðni Hilmar Halldórsson, Allan Sigurðsson, Hannes Þór Halldórsson

Kvikmyndataka ársins

Húsó - Magga Vala
DIMMA (The Darkness) - Árni Filippusson
Svörtu sandar II - Jóhann Máni Jóhannsson
IceGuys 2 - Baltasar Breki Samper
Ráðherrann 2 - Gunnar Auðunn Jóhannsson

Tónlist ársins

Húsó - Salka Valsdóttir
Ráðherrann 2 - Kjartan Holm
Skvíz - Halldór Eldjárn
DIMMA (The Darkness) - Atli Örvarsson, Kjartan Holm, Sindri Már Sigfússon
IceGuys 2 - Kristján Sturla Bjarnason, Ásgeir Orri Ásgeirsson, Þormóður Eiríksson

Heimildaefni ársins

Þríburar
Perlur Kvikmyndasafnsins
Kaninn
Grindavík
Mari

Leikið sjónvarpsefni ársins

Húsó
Ráðherrann 2
DIMMA (The Darkness)
Svörtu sandar II
Útilega

Frétta- eða viðtalssefni ársins

Kveikur
Vistheimilin
RAX augnablik 2024
Eftirmál
Vegur að heiman

Sjónvarpsefni ársins

Áramótaskaupið 2024
Bannað að hlæja
Húsó
IceGuys 2
Idol
Íslensk sakamál
Kennarastofan
Kviss ársins
Söngvakeppnin

TILNEFNINGAR TIL ÍSLENSKU SJÓNVARPSVERÐLAUNANNA FYRIR ÁRIÐ 2023


Leikkona ársins
Svandís Dóra Einarsdóttir - Afturelding
Katla Margrét Þorgeirsdóttir - Svo lengi sem við lifum
Hanna María Karlsdóttir - Heima er best
Halldóra Geirharðsdóttir - Venjulegt fólk: 6. sería
Sandra Barilli – IceGuys

Leikari ársins
Ingvar E. Sigurðsson - Afturelding
Þorsteinn Bachmann - Afturelding
Þórhallur Sigurðsson - Arfurinn minn
Hilmar Guðjónsson - Venjulegt fólk
Vignir Rafn Valþórsson - Heima er best

Leikstjóri ársins
Hafsteinn Gunnar Sigurðsson, Gagga Jónsdóttir, Elsa María Jakobsdóttir - Afturelding
Katrín Björgvinsdóttir - Svo lengi sem við lifum
Sævar Guðmundsson - Stormur
Þór Freysson - Góður strákur og vel upp alinn
Álfheiður Marta Kjartansdóttir - Mannflóran

Sjónvarpsviðburður ársins
Söngvakeppnin 2023
Góður strákur og vel upp alinn
Úrslitakeppnin í körfubolta 2023
Klassíkin okkar - Kvikmyndatónlistarveisla
Íslandsmótið í golfi

Útsendingarstjóri ársins
Ragnar Eyþórsson - Vikan með Gísla Marteini

Ragnar Eyþórsson - Sögur - verðlaunahátíð barnanna 2023
Salóme Þorkelsdóttir, Þór Freysson - Söngvakeppnin 2023
Björgvin Harðarson - Idol 2023
Stefán Snær Geirmundsson - Úrslitakeppnin í körfubolta 2023

Leikmynd ársins
Svo lengi sem við lifum - Heimir Sverrisson (Irma studio)
Heima er best - Tonie Zetterström
Afturelding - Sólrún Ósk Jónsdóttir
Arfurinn minn - Sveinn Viðar Hjartarson
Áramótaskaupið 2023 - Úlfur Grönvold

Brellur ársins
Heima er best - Jan Daghelinckx
IceGuys - Úlfur E. Arnalds

Íþróttaefni ársins
Skaginn
HM Stofan - HM karla í handbolta
HM Stofan - HM kvenna í fótbolta
Körfuboltakvöld 2023
Lengsta undirbúningstímabil í heimi 2023

Handrit ársins
Svo lengi sem við lifum - Aníta Briem
Afturelding - Hafsteinn Gunnar Sigurðsson, Halldór Laxness Halldórsson, Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir, Jörundur Ragnarsson, Katrín Björgvinsdóttir
IceGuys - Sólmundur Hólm Sólmundarson
Krakkaskaupið 2023 - Árni Beinteinn Árnason
Stormur - Jóhannes Kr. Kristjánsson, Sævar Guðmundsson, Heimir Bjarnason

Menningar- og mannlífsefni ársins
Hvunndagshetjur II
Fílalag
Hvar er best að búa?: 4. sería
Að heiman
Sambúðin

Skemmtiefni ársins
IceGuys
Vikan með Gísla Marteini 2023
Kanarí 2
Með á nótunum
Áramótaskaupið 2023

Gervi ársins
Afturelding - Josephine Hoy
Venjulegt fólk: 6. sería - Kristín Júlla Kristjánsdóttir
Heima er best - Ásta Hafþórsdóttir
Svo lengi sem við lifum - Kristín Júlla Kristjánsdóttir
Arfurinn minn - Hafdís Kristín Lárusdóttir

Búningar ársins
Kanarí 2 - Karen Sonja Briem
Afturelding - Margrét Einarsdóttir
Venjulegt fólk: 6. sería - Rannveig Gísladóttir
Svo lengi sem við lifum - Júlíana Lára Steingrímsdóttir
IceGuys - Sigrún Ásta Jörgensen

Barna- og unglingaefni
Akademíurnar
Hvítar lygar
Krakkaskaupið 2023
Sögur - verðlaunahátíð barnanna 2023
Stundin okkar - Bolli og Bjalla

Sjónvarpsmanneskja ársins
Viktoría Hermannsdóttir - Hvunndagshetjur II
Sigurlaug Margrét Jónasdóttir - Okkar á milli
Berglind Pétursdóttir - Vikan með Gísla Marteini 2023
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir - Tvíburar
Chanel Björk Sturludóttir - Mannflóran

Hljóð ársins
Stormur - Gunnar Árnason
Afturelding - Rune Klausen, Sebastian Vaskio
Framkoma: 4. sería - Brynjar Unnsteinsson
Idol 2023 - Sigurður Ingvar Þorvaldsson
Venjulegt fólk: 6. sería - Birgir Örn Tryggvason

Klipping ársins
Stormur - Heimir Bjarnason & Sævar Guðmundsson
Afturelding - Kristján Loðmfjörð
Svo lengi sem við lifum - Valdís Óskarsdóttir, Guðlaugur Andri Eyþórsson, Sigurður Eyþórsson
Skaginn - Logi Ingimarsson
Idol 2023 - Fannar Scheving Edvardsson

Kvikmyndataka ársins
Baklandið 2 - Anton Smári Gunnarsson
Kanarí 2 - Hrafn Garðarsson, Margrét Vala Guðmundsdóttir
Afturelding - Jakob Ingimundarson, Ásgrímur Guðbjartsson
Svo lengi sem við lifum - Árni Filippusson
Venjulegt fólk: 6. sería - Jóhann Máni Jóhannsson

Tónlist ársins
Ævintýri Tulipop - Gísli Galdur Þorgeirsson, Máni Svavarsson
Kanarí 2 - Salka Valsdóttir, Magnús Jóhann Ragnarsson, Hildur Kristín Stefánsdóttir, Jóhannes Ágúst Sigurjónsson
Stormur - Jófríður Ákadóttir
Afturelding - Davíð Berndsen
Svo lengi sem við lifum - Kjartan Holm

Heimildaefni ársins
Baklandið 2
Stórmeistarinn
Stormur
Tvíburar
Surtsey: Land verður til

Leikið sjónvarpsefni ársins
Arfurinn minn
Afturelding
Svo lengi sem við lifum
Heima er best
Venjulegt fólk: 6. sería

Frétta- eða viðtalssefni ársins
Okkar á milli
Landinn
Kompás 2023
Kveikur
Kastljós

Sjónvarpsefni ársins
Afturelding
Áramótaskaupið 2023
Heima er best
Heimsókn
IceGuys
Idol
Kviss
Söngvakeppnin
Venjulegt fólk: 6. sería