Um KMÍ
Á döfinni

13.9.2023

Tilverur verður opnunarmynd RIFF

Tilverur, í leikstjórn Ninnu Pálmadóttur, verður opnunarmynd RIFF, alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík. Hátíðin hefst 28. september og stendur yfir til 8. október.

Myndin seg­ir frá manni sem flyst tilneyddur til borg­ar­inn­ar þegar ríkið tek­ur jörð hans yfir til virkj­un­ar­fram­kvæmda. Í borg­inni kynn­ist hann blaðbera, hinum 10 ára gamla Ara, sem mark­ar upp­hafið að umbreyt­ing­um á lífi beggja.

Tilverur var heimsfrumsýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto og er  fyrsta kvikmynd Ninnu Pálmadóttur í fullri lengd. Handritið skrifar Rúnar Rúnarsson.

Með aðalhlutverk fara Þröstur Leó Gunnarsson, Hermann Samúelsson, Anna Gunndís Guðmundsdóttir og Hjörtur Jóhann Jónsson.

Myndin verður tekin til almennra sýninga í Sambíóunum 29. september.