Um KMÍ
Á döfinni

11.9.2024

Tímabundið skjól fær frábærar móttökur eftir heimsfrumsýningu í Toronto

Íslenska heimildamyndin Tímabundið skjól (Temporary Shelter) var heimsfrumsýnd á TIFF, alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto, 5. september. Þar hefur myndin verið sýnd fyrir fullum sal áhorfenda á einni stærstu kvikmyndahátíð í Norður-Ameríku og fengið góð viðbrögð gagnrýnenda.

Tímabundið skjól segir sögu úkraínsks flóttafólks sem flúðu til Íslands þegar stríð Rússa hófst 2022. Leikstjóri er Anastasiia Bortuali og framleiðandi er Helgi Felixson.

Myndin fékk fjórar stjörnur af fimm hjá vefmiðlinum Film Festival Today, þar sem gagnrýnandinn Christopher Llewelly Reed segir myndina vera grípandi en um leið óþægilega frásögn þar sem léttir og angist skiptast á.

Þá hefur einnig  verið fjallað um Tímabundið skjól í Point of View Magazine, þar sem segir að myndin veiti einstæða sýn inn í eftirköst stríðsátakanna í Úkraínu.

Myndin verður sýnd í Bíó Paradís í vetur.